is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn í Reykjavík > Samfélagssvið / School of Social Sciences > BSc Viðskipta- og hagfræðideild (og BSc sálfræði -2019) / Department of Business and Economics >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/44271

Titill: 
  • Markaðsáætlun fyrir Musteri Spa
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Markmið ritgerðarinnar er að útbúa heildstæða markaðsáætlun fyrir Musteri Spa sem er að fara af stað með þarameðferðir í heilsulind sinni. Rannsóknarspurningin sem lögð var fram er: „Hvaða þættir hafa áhrif á áhuga fyrir þarameðferðum?“. Bæði var notast við megindlegar og eigindlegar rannsóknaraðferðir og er rannsóknin byggð á viðtali við annan eiganda Blábjargar Resort og Musteri Spa, Auði Völu Gunnarsdóttur.
    Ritgerðin fer yfir sögu fyrirtækisins, fræðilegan bakgrunn þarans ásamt skilgreiningu helstu markaðshugtaka. Þar á eftir er markaðsáætlunin sett fram. Einnig var sett fram spurningarkönnun til þess að kanna áhuga fyrir þarameðferðum.
    Helstu niðurstöður sýndu að áhuginn fyrir þarameðferðum liggur helst hjá konum á aldrinum 30+. Einnig höfðu flestir þátttakendur aldrei prófað þarameðferðir áður og aðeins um helmingur heyrt um slíkar meðferðir. Flestir þátttakendur voru ekki tilbúnir til þess að borga fyrirhugað verð og eldri kynslóðin var tilbúin til þess að borga meira fyrir meðferðirnar heldur en sú yngri.
    Lykilhugtök: Markaðsgreining, Markaðssetning, Umhverfi, Sjálfbærni, Musteri Spa, Blábjörg, Markhópur, Þaraböð og Þaravafningar.

Samþykkt: 
  • 15.5.2023
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/44271


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
BS ritgerð - Arna Ormarsdóttir og Elísa Eir Gunnarsdóttir.pdf910,2 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna