en English is Íslenska

Thesis (Bachelor's)

University of Iceland > Heilbrigðisvísindasvið > B.S. verkefni - Heilbrigðisvísindasvið >

Please use this identifier to cite or link to this item: https://hdl.handle.net/1946/44460

Title: 
  • Title is in Icelandic Ósýnileiki eikynhneigðar. Þekking og viðhorf á eikynhneigð
  • The invisibility of asexuality
Degree: 
  • Bachelor's
Abstract: 
  • Abstract is in Icelandic

    Umræða um kynhneigð hefur aukist undanfarin ár en þar virðist vanta umfjöllun um eikynhneigð. Eikynhneigð er kynhneigð þar sem fólk finnur almennt ekki fyrir rómantískri eða kynferðislegri löngun gagnvart öðru fólki. Hún er oft talin vera ósýnileg í samfélagslegu umhverfi nútímans og fyrirfinnst varla í fjölmiðlum. Tilgangur verkefnisins var að kanna þekkingu og viðhorf til eikynhneigðar, en tilgátur rannsakenda voru að þekking á hugtakinu væri almennt lítil og að litlar undirtektir væru fyrir frekari umfjöllun á málefninu. Könnun sem rannsakendur sömdu var send á alla grunnnema Háskóla Íslands og deilt á Facebook-síðum rannsakenda og opnum Facebook-hópum. Samtals fengust 750 nothæf svör. Meirihluti þátttakenda voru konur á aldrinum 20-29 ára. Tilgátur rannsakenda stóðust ekki þar sem mikill meirihluti þátttakenda kannaðist við hugtakið en við því var ekki búist. Niðurstöður viðhorfsspurninga sýndu að þátttakendur voru almennt jákvæð gagnvart hugtakinu en þó mátti finna dulda fordóma í ákveðnum svörum. Augljóst er að það er grundvöllur fyrir frekari umfjöllun og sýnileika á málefnum eikynhneigðra í samfélaginu og fjölmiðlum.

Accepted: 
  • May 26, 2023
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/44460


Files in This Item:
Filename Size VisibilityDescriptionFormat 
Ósýnileiki eikynhneigðar.pdf791,7 kBOpenComplete TextPDFView/Open
yfirlysing.pdf4,96 MBLockedDeclaration of AccessPDF