is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Verkfræði- og náttúruvísindasvið > B.S. verkefni - Verkfræði- og náttúruvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/44546

Titill: 
  • „Við eigum einnig að njóta góðs af ferðaþjónustu á Íslandi“: Bætt aðgengismál fatlaðra innan ferðaþjónustunnar
  • Titill er á ensku "We should also be able to enjoy tourism in Iceland": Improved access for people with disabilities within the tourism sector
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Ferðaþjónusta er mikilvæg íslensku efnahagslífi og hafa margar tegundir ferðamennsku komið fram síðustu ár. Aðgengileg ferðaþjónusta er hugtak sem hefur verið áberandi í umræðunni síðustu ár. Aðgengileg ferðaþjónusta snýr að því að allir eiga að hafa kost á því að ferðast á einfaldan hátt, þá sérstaklega einstaklingar sem lifa með fötlun af einhverju tagi. Það er mikilvægt að allir hafi sömu réttindi í lífinu og á það einnig við þegar kemur að ferðaþjónustu. Mikil vitundarvakning hefur átt sér stað þegar kemur að einstaklingum með fötlun og ferðalögum og hafa verið sett verkefni á laggirnar sem snúa að málefnum fatlaðra og aðgengi þeirra í ferðaþjónustu. Rannsókn þessi skoðar aðgengi fatlaðra á vinsælum stöðum innan Gullna hringsins, nánar tiltekið við Gullfoss og Geysi. Kannað var aðgengi á framangreindum stöðum með aðstoð einstaklings sem notar hjólastól í daglegu lífi ásamt gátlista til viðmiðunar. Niðurstöður rannsóknarinnar byggjast á vettvangsferðinni ásamt viðtölum við einstaklinga sem búa við fötlun um upplifun þeirra af aðgengismálum á ferðalögum hér á landi. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að einstaklingar upplifa ferðalög hér á landi heilt yfir á jákvæðan máta. Þrátt fyrir að fyrirtæki innan ferðaþjónustunnar séu á réttri leið eiga þau enn langt í land til að fullt jafnræði náist hvað viðkemur aðgengismálum fatlaðra á ferðamannastöðum.

Samþykkt: 
  • 30.5.2023
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/44546


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
BS - Skemman.pdf966,36 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna
YFIRLÝSING.pdf266,38 kBLokaðurYfirlýsingPDF