Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/44548
Kjarni AF21 ST5 var tekinn í leiðangri fyrir Rannsóknarsetrið um haf, loftslag og samfélag (e. Reaserach center on Ocean, Climate and Society, ROCS) þann 12. júní 2021 utan við sunnanvert landgrunn Íslands. Kornastærðar og kornagerðargögn eru notuð til þess að skoða fornumhverfisaðstæður. Kornagerðargreining er meðal annars notuð til að greina korn frá ísbornu seti (e. Ice Rafted Debris, IRD) til að sjá magn og uppruna hafíss og ísjaka. Sá hluti kjarnans sem unnið er með í þessu verkefni er frá hámarki síðasta jökulskeiðs (e. Last Glacial Maximum, LGM) (um 26-18 ka). Í kjarnanum er aukning á stærri kornastærðum á bilinu 300-320 cm dýpi (u.þ.b. 22.5 ka) sem er við hámarkið á síðasta jökulskeiði. Basalt korn eru algengustu IRD kornin og er styrkur þeirra frekar sveiflukenndur. Næst algengustu kornin eru kvars og feldspat kristallar og eru þau almennt í mótfasa við basalt kornin. Sveiflunar á IRD benda til sveiflna í losun á ísjökum eða myndun hafíss og smárra losunaratburða. Að mestu eru hafís og ísjakar að koma frá Íslandi sem sést á magni basalt IRD korna en einnig er frekar áberandi mekri frá Grænlandsísnum sem bendir til þess að Austur-Grænlandsstraumurinn hafi verið frekar sterkur við hámark síðasta jökulskeiðs.
Sediment core AF21 ST5 was collected in a Research center on Ocean, Climate and Society (ROCS) cruise on the 12. June 2021 at the bottom of the shelf slope south of Iceland. Grain size and grain type analysis is used to determine the paleoenvironment. Grain type analysis is for example used to analyse ice rafted debris (IRD) to see the quantity and origin of ice (both sea ice and icebergs). The part of the core that is used in this project is from the last glacial maximum (LGM). In the core there is an increase in larger grain sizes at a depth of 300-320 cm (around 22.5 ka) which is around the LGM. The most common IRD grains are basalt and their concentration varies with maximum values at 24 ka. Other common IRD grains are quartz and feldspar crystals and their concentration also varies but the fluctuations are in antiphase with the basalt fluctuations. The fluctuations of IRD concentration suggest a series of small ice release events. Signal from the Iceland LGM ice sheet is most prominent seen from the basaltic IRD, but a signal from Greenland is also present (quartz and fledspars), which suggest that the East-Greenland current would have been relatively strong at the LGM.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Valgardur_Hilmarsson_Lokaritgerd.pdf | 1,66 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
Skemman-yfirlysing.pdf | 511,67 kB | Lokaður | Yfirlýsing |