is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Landbúnaðarháskóli Íslands > Skipulag og hönnun > Meistaraprófsritgerðir >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/44635

Titill: 
  • Mannlíf Grasagarðsins í Reykjavík. Notkun og viðhorf gesta
  • People of Reykjavík Botanical Garden. Use and perspective of visitors
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Grasagarðurinn í Reykjavík gegnir því tvíþætta hlutverki að vera grænt svæði í borgarumhverfi okkar og einnig plöntusafn undir berum himni. Garðurinn er opinn allan ársins hring. Markmið verkefnisins er að kanna viðhorf og notkun gesta hans. Til þess voru settar fram spurningar með gæðamatsflokkun Patrik Grahn og athafnaflokkun Jan Gehl til hliðsjónar. Spurningarkönnun var framkvæmd á tveimur ólíkum tímabilum, annars vegar yfir vetrartímann og hins vegar yfir sumartímann. Með könnuninni var ætlunin að finna út hvaða ástæður lægju að baki heimsóknum fólks í Grasagarðinn, hvernig fólk notaði hann og viðhorfi gesta til hans. Grasagarðurinn er fjölfarinn, bæði yfir vetrar-og sumartímann. Könnunin leiddi í ljós að gestir garðsins nota hann í ýmsum tilgangi og þá helst til að komast í náttúru, hreyfa sig, fræðast og fyrir sálræna þætti eins og hugarró. Fleiri konur en karlar heimsækja garðinn og gestir koma gjarnan í garðinn í litlum hópum. Gestir dvelja lengur í garðinum yfir sumartímann en vetrartímann og koma lengra að.

  • Útdráttur er á ensku

    The Reykjavik Botanic Garden has the dual role of serving as green area in our urban environment and as an open-air botanical museum. The park is open all year round. The aim of the thesis is to explore the usage and perspective of the garden’s visitors. For the purpose, questions were formulated based on Patrik Grahn’s quality assessment classification and Jan Gehl's activities classification. A survey was conducted in two different periods, one during the winter and the other during the summer. The goal of the survey was to find out the reasons behind people visiting the Reykjavik Botanical Garden, how people use the garden and the perspective of its visitors. The Reykjavik Botanical Garden is busy, both during the winter and the summer. The survey revealed that the park's visitors use it for various purposes, mainly to experience nature, exercise, study and for psychological reasons such as peace of mind. The garden is more frequently visited by women than men and many visitors come to the park in small groups. Visitors tend to stay longer in the park during the summer compared to the winter and come from farther away.

Samþykkt: 
  • 1.6.2023
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/44635


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Mannlíf Grasagarðsins í Reykjavík Notkun og viðhorf gesta.pdf41,97 MBOpinnPDFSkoða/Opna