is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn í Reykjavík > Samfélagssvið / School of Social Sciences > BSc Sálfræðideild / Department of Psychology >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/44641

Titill: 
  • Titill er á ensku Adolescents sleep, a pathway to improved mental health and cognitive function
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Útdráttur er á ensku

    Adolescents’ sleep has been widely studied as well as the consequences that sleep deprivation can have on anxiety and cognitive functioning. Studies have shown that sleep deprivation has an increasing effect on anxiety as well as having an impairing effect on cognitive functioning, e.g., working memory, memory consolidation and recall. In this study, the relationship between sleep, anxiety and cognitive function was examined simultaneously with the idea that sleep deprivation would have a detrimental effect on anxiety and cognitive functioning. A mediating relationship was also examined, where anxiety was proposed to mediate the effect of sleep problems on cognitive function. The results of the study showed a significant relationship between all variables, i.e., sleep, anxiety, and cognitive function, where reduced sleep and increased anxiety had an impairing effect on cognitive function. The mediation effect was also significant, as anxiety partially mediated the effect of sleep problems on cognitive function. These results underline the importance of adolescents getting adequate sleep and paying attention to their mental health, as consequences of sleep deprivation and increased anxiety can have an extremely negative effect on cognitive function.
    Keywords: Sleep, anxiety, cognitive function, adolescents

  • Svefn ungmenna hefur verið mikið rannsakaður og þær afleiðingar sem að skertur svefn getur haft í för með sér. Svefnvandi hefur þá sérstaklega áhrif á kvíða sem og hugræna virkni, og hafa rannsóknir sýnt fram á að svefnvandi ýti undir kvíða auk þess að hafa neikvæð áhrif á hugræna virkni. Má þar t.d. nefna, vinnsluminni, samþáttun minnis og upprifjun. Í þessari rannsókn var samband svefns, kvíða og hugrænnar virkni skoðað samtímis með það í huga að skertur svefn myndi hafa slæm áhrif á kvíða og hugræna virkni. Miðlunarsamband var einnig skoðað þar sem kvíði var talinn miðla áhrifum svefnvanda yfir á hugræna virkni.
    Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu fram á marktækt samband milli allra breyta, þ.e.a.s. svefns, kvíða og hugrænnar virkni þar sem að skertur svefn og aukinn kvíði drógu úr hugrænni virkni. Einnig var um marktæk miðlunaráhrif að ræða þar sem að kvíði miðlaði, að hluta til, áhrifum svefnvanda á hugræna virkni. Þessar niðurstöður undirstrika mikilvægi þess að ungmenni fái nægilegan svefn og hugi auk þess að andlegri heilsu sinni þar sem afleiðingar svefnvanda og aukins kvíða hafa afar slæm áhrif á hugræna virkni.
    Lykilorð: Svefn, kvíði, hugræn virkni, ungmenni

Samþykkt: 
  • 1.6.2023
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/44641


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Adolescents Sleep, a Pathway to Improved Mental - Health and Cognitive Function - Vilhelm.pdf257,97 kBLokaður til...01.07.2026HeildartextiPDF
vilhelmbeidni.pdf400,88 kBOpinnBeiðni um lokunPDFSkoða/Opna