is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn í Reykjavík > Samfélagssvið / School of Social Sciences > BA Lagadeild / Department of Law >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/44763

Titill: 
  • Tilgangur : rekstrarafleiðingar í hluta- og einkahlutafélögum þegar teknar eru ákvarðanir andstætt skráðum tilgangi
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Tilgangur fyrirtækja hefur mikilvægt hlutverk við daglegan rekstur en er einnig mikilvægur þáttur stofnsamþykkta. Samþykktir félaga eru einskonar lög félagsins sem ber að fylgja ef upp kemur ágreiningsefni eða eitthvað þarf að fá á hreint hjá starfsemi viðkomandi. Þar sem tilgangur er hluti samþykkta en ekki stefnu fyrirtækis þá er greinilegt að mikilvægt er að fylgja honum eins og hann kemur fyrir og breyta honum ef þörf er á til þess að hann sé ávallt í samræmi við rekstur og rekstrarform, þar sem afleiðingar geta verið af því einu að fara út fyrir hann. Sjónarmið á sviði sjálfbærni hjá fyrirtækjum hefur vaxið síðustu ár þar sem áhrif starfsemi flestra starfandi fyrirtækja hefur einhvers konar áhrif á umhverfið. Með innleiðingu markmiðs um sjálfbærni í samþykktir eða sem hluta tilgangs starfseminnar er lagt ákveðin skylda á fyrirtæki að fylgja því og í kjölfarið stuðla að minni áhrifum sem starfsemin hefur á umhverfið. Stjórnendur fyrirtækja spila stóran þátt í því að leiða vinnuumhverfið í átt að sjálfbærari starfsemi. Athuga þarf hvort viðskiptahættirnir séu sjálfbærir og þarf reksturinn að vera uppbyggður á þann hátt að hann hafi ekki neikvæð áhrif á umhverfið. Fyrirtæki sem ætla sér að innleiða sjálfbærni þurfa að setja sér langtíma markmið líkt og gert er með flest annað innan þeirra. Ef starfsemi fyrirtæki breytist eða fyrirsjáanlegt er að hún muni breytast verulega þarf í sumum tilfellum að breyta tilgangi eða hreinlega slíta félagi en það getur skipt máli hvort um samruna sé að ræða, þá án stofnunar nýs félags eða með stofnun nýs félags. Lánadrottnar þurfa einnig að geta treyst eða þá vera tryggðir fyrir því að forsendur breytist innan fyrirtækja eftir að hafa samþykkt útlán.
    Eftir að hafa dregið allt saman kom í ljós að mikilvægt er að tilgangur sé samrýmanlegur starfsemi fyrirtækis og taka inn sjálfbærni sem hluta tilgangs starfseminnar getur til langtíma haft góð áhrif og stuðlar að skyldu fyrirtækja til að taka upp sjálfbærari viðskiptahætti. Lánadrottnar afla sér almennt tryggingu við útlán en þó geta ófyrirséðir hlutir komið upp og því mikilvægt að þeir hafi gert samninga sem vernda þeirra hagsmuni ef illa hittir á.

Samþykkt: 
  • 7.6.2023
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/44763


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
BA ritgerð - AÐAL_vilhelmina.pdf387,53 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna