Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/44772
Landbúnaður er mikilvæg undirstaða sérhvers lands og á ekki einungis hlut í fæðiöryggi og atvinnusköpun en tryggir sömuleiðs búsetu um allt landið og síðast en ekki síst, er mikilvægur hluti af þjóðasálinni. Mörg er búmanns raunin og íslenski landbúnaðurinn hefur í gegnum aldirnar þurft að berjast við bæði náttúruhamfarir og búfjársjúkdóma svo eitthvað sé nefnt. Búfjársjúkdómar hafa lengi vel og enn í dag valdið talsverðu fjárhagslegu tjóni, sauðfjársjúkdómurinn riða er einn af þeim.
Aðgerðir hérlendis gegn riðu hefur haldist nokkuð óbreytt síðan á síðustu öld, en nú er kominn ákall á að skoða hvort aðrar aðgerðir samhliða hinni upprunalegu gætu nýst sauðfjárrækt á Íslandi. Í þessari ritgerð skoðaði ég riðu, afbrigði hennar, einkenni afbrigðanna, greiningaraðferðir og þýðingu arfgerða. Farið stuttlega yfir sögu riðu á Íslandi, í Noregi og á Kýpur, þeirra nálgun og árangur gegn riðuveiki skoðaður.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Birtingarmynd_riðuveiki_og_saga._BS_ritgerð_Heidi_L._Andersen.pdf | 1,4 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |