is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Landbúnaðarháskóli Íslands > Ræktun og fæða > B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/44779

Titill: 
  • Samanburður á ull af feldfjár lömbum og annarri lambsull
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Gotlandsfé er fyrirmynd að feldfé á Íslandi og við ræktunarmarkmið á bæði Gotlandsfé og feldfé er mesta áherslan lögð á feldeiginleika þar sem aðalafurðin er gæran og því miðast kynbætur við það. Feldfé er grátt fé sem á að hafa jafnt og gljáandi hárafar, litur ullar verður að vera sem jafnastur og hárin leggist í hæfilega stóra lokka. Upp úr 1980 byrjaði gráu fé að fjölga í landinu vegna þess að verð á gráum gærum hækkaði talsvert í Svíþjóð og víðar og voru íslenskar gærur sendar út til Svíþjóðar um árabil. Ekki stóðust gráu íslensku gærurnar þó samkeppnina við gráu gærurnar af Gotlandsfénu og minnkaði þá áhugi bænda á ræktun á feldfé. Það voru þó nokkrir bændur sem héldu ræktuninni áfram og síðan þá hafa feldfjár hrútar verið í boði á sæðingarstöðvum. Talið hefur verið að feldfé sé með mýkri ull en venjulegt fé en engar rannsóknir hafa verið gerðar sem hafa sýnt fram á það.
    Í þessari rannsókn verður gerður samanburður á ull á feldfjár lömbum og venjulegum lömbum og athugað hvort mun megi sjá þar á milli. Farið var á 9 bæi og safnað var ullarsýnum bæði af feldfjár lömbum og venjulegum lömbum. Þær upplýsingar sem fengust fyrir hvert lamb var, lambsnúmer, þungi, aldur, bæjanúmer, hópur og litur. Ullarsýni voru send til Bretlands til ullarmælinga og með ullarmælingunum voru fengnar niðurstöður um hvort munur væri á ull af feldfjár lömbum og venjulegum lömbum.
    Í niðurstöðunum kom í ljós að ekki var marktækur munur á ullareiginleikum milli hópa en meðaltal fyrir meðalþvermál hjá feldfjár lömbum var 31,7 μm og 32,7 μm hjá venjulegum lömbum. Feldfjár lömb hafa þó almennt jafnara hárafar en venjuleg lömb en meiri breytileika mátti sjá á ullinni hjá venjulegu lömbunum. Þungaáhrif voru að sjá hjá feldfjár lömbum en ekki venjulegum lömbum. Einnig sýndu niðurstöðurnar að erfðamunur gæti verið til staðar á ullareiginleikum milli hópa og milli bæja. Niðurstöður úr þessari rannsókn eru nokkuð samsvarandi við eldri rannsóknir.

Samþykkt: 
  • 7.6.2023
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/44779


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Bs_ritgerð_Ragnheiður_Árnadóttir.pdf433,7 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna