is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Landbúnaðarháskóli Íslands > Auðlindadeild (2005-2016) > B.S. verkefni - Auðlindadeild >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/10849

Titill: 
  • Notkun hitalagna í hesthúsgólfum
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Tilgangur rannsóknarinnar var að finna hagkvæma leið til að halda undirlagi undir hrossum þurru yfir innistöðutíma að vetrarlagi.
    Markmið rannsóknarinnar var að rannsaka áhrif gólfhita í hrossastíum á þurrefni stíumottunnar, ásamt því að kanna hitastig í upphituðum stíum annars vegar og óupphituðum stíum hins vegar. Þá var reynt með rannsókninni að fá einhverja mynd af mun á rekstrarkostnaði upphitaðra og óupphitaðra stía. Rannsóknin fór fram í nýju hesthúsi á Hvanneyri og var annar helmingur hússins
    upphitaður með hveravatni en hinn helmingurinn var óupphitaður. Rannsóknin fór fram í tveimur lotum, vor og haust 2007. Að vori var reynt að finna út hversu mikið stíur þornuðu með því að setja sama magn af spæni í báða helminga tilraunarinnar og kanna þurrefnis- og hitamun á milli upphitaðra og óupphitaðra stía. Að hausti var hins vegar kannað hversu mikill spænir sparaðist við upphitun þegar spænisnotkun er ákveðin með sjónmati, en hirðingamaður hesthússins setti spæni í báða helminga eftir því sem honum fannst þurfa miðað við hversu þurrt yfirborð stíunnar leit út fyrir að vera. Sýni úr stíumottu voru tekin á þriggja daga fresti að vori en á vikufresti að hausti og þurrefni og hiti í undir- og yfirborði mottu voru mæld í báðum hlutum rannsóknarinnar, ásamt spænismagni, vatnssulli hrossa og tíma úti að hausti. Niðurstöður sýndu að gólfhiti leiðir til þurrari stíumottu og jafnframt að hiti ofan á og innan í stíumottu er meiri í upphituðum stíum en óupphituðum stíum. Um helmingi minni spænir fór í upphitaðar en óupphitaðar stíur í hausthluta. Óupphitaðar stíur í hausthluta rannsóknar urðu þurrari eftir því sem leið á tímabilið ásamt því að spænisnotkun minnkaði, sem bendir til að einhver þróun í stíumottunni leiði til þess
    að hún þorni upp.

Styrktaraðili: 
  • Orkuveita Reykjavíkur
Samþykkt: 
  • 21.2.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/10849


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Notkun hitalagna í hesthúsgólfum Sigr Ólafs.pdf188.18 kBOpinnPDFSkoða/Opna