is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Landbúnaðarháskóli Íslands > Ræktun og fæða > B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/44784

Titill: 
  • Burðar- og móðuratferli íslenskra kúa
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Tilgangur þessa verkefnis var að skoða hvers konar móðuratferli kýr og kvígur sýna fyrstu klukkustundina eftir burð með framkvæmd atferlisrannsóknar. Markmiðið var að kanna hvort að munur sé á atferli fyrsta kálfs kvíga og kúa sem hafa borið áður, auk þess að kanna hvort að
    munur sé á móðuratferli íslenskra kúa og kúa af erlendum kynjum. Annað markmið verkefnisins var að kanna atferli kúa í geldkúastíu, hvernig þær verja tíma sínum þar og hvort þær hafi tækifæri til þess að sýna sitt náttúrulega atferli þar.
    Við gerð verkefnisins var stuðst við erlendar rannsóknir sem gerðar hafa verið á þessu viðfangsefni, en vöntun er á rannsóknum á móðuratferli íslenskra kúa. Atferlisrannsóknir voru framkvæmdar með tveimur mismunandi aðferðum, störun og skimun.
    Úrtakið í þessari rannsókn var ekki nógu stórt til þess að niðurstöður séu marktækar en þær gefa vísbendingar um að móðuratferli íslenskra kúa sé svipað því móðurarferli sem þekkist hjá öðrum kúakynjum. Helsta móðuratferli sem kýr sýna stuttu eftir burð er að sleikja kálfinn, en það gera þær til þess að þurrka hann og örva líkamsstarfsemi hans. Niðurstöður rannsóknarinnar leiddu einnig í ljós að erfitt getur verið að greina burðaratferli kúa tímanlega fyrir burð. Hins vegar er mikilvægt að þekkja burðaratferli og hafa eftirlit með kúm sem komnar eru að burði til þess að tryggja velferð þeirra og afkvæma.
    Niðurstöður þessarar rannsóknar gefa tilefni til þess að rannsaka þetta viðfangsefni nánar.

Samþykkt: 
  • 7.6.2023
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/44784


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
BS-Melkorka-buvisindi.pdf16,97 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna