is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Landbúnaðarháskóli Íslands > Ræktun og fæða > B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/44786

Titill: 
  • Nýtt kynbótamat íslenska bygg kynbótaverkefnisins
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Bygg (Hordeum vulgare L.) er ein mest ræktaða korntegund heims. Það hefur mikla aðlögunarhæfni og hefur verið aðlagað að aðstæðum þar sem vaxtartími er stuttur og veðurfar kalt sem gerir það að einni mikilvægustu korntegund norðurslóða, þar á meðal Íslandi. Korn hefur verið ræktað á Íslandi frá landnámi, með hléum. Í byrjun 20. aldar fóru fram víðtækar tilraunir með bygg en það var svo um 1990 sem byggrækt á Íslandi fór á skrið þar sem fór saman hlýnandi veðurfar og árangursríkt kynbótastarf. Áhersla hefur verið lögð á að kynbæta bygg til að vera fljótþroska til að ná þroska á þeim stutta vaxtartíma sem hér er. Einnig hefur verið lögð áhersla á að kynbæta fyrir strástyrk og hæð stráa til að plönturnar standi betur af sér haustlægðir. Þá er alltaf lögð áhersla á að ná fram góðri uppskeru þar sem aukin uppskera gefur meiri arðsemi. Mikill árangur hefur náðst með kynbótastarfi á Íslandi en það má alltaf stefna hærra.
    Í þessu verkefni var markmið að þróa líkan til þess að reikna kynbótamat byggs og bera kennsl á arfgerðir með hátt kynbótamat fyrir uppskeru, þúsundkornaþyngd, rúmþyngd, þurrefni, hæð og NDVI. Þá var reiknað arfgengi þessara sömu eiginleika. Niðurstöður nýtast til stuðnings við val á arfgerðum til áframhaldandi kynbóta.
    Fjögur líkön voru búin til og borin saman þar sem arfgerð var höfð sem slembihrif í öllum líkönum en föst hrif voru mismunandi. Líkön voru borin saman með AIC og BIC og arfgengi reiknað fyrir alla eiginleika. Þá var hæfasta líkanið valið og kynbótamat reiknað með BLUP fyrir hvern eiginleika með hæfasta líkaninu.
    Helstu niðurstöður sýndu að arfgengi flestra eiginleika er nokkuð hátt. Sömu arfgerðir fengu ekki hæsta kynbótamat fyrir eiginleikana. Tveggja raða arfgerðir voru að fá hátt kynbótamat fyrir rúmþyngd og þúsundkornaþyngd en sex raða arfgerðir fyrir uppskeru og þurrefni.

Samþykkt: 
  • 7.6.2023
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/44786


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Gunnhildur Gíslad Nýtt_kynbótamat_íslenska_bygg_kynbótaverkefnisins.pdf1,34 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna