Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/7102
Möguleikar trjátegunda til að lifa og vaxa ræðst af fjölmörgum þáttum sem stundum eru flokkaðir gróflega í tvennt: jarðvegsþættir og veðurfarsþættir. Hefðbundnar samanburðartilraunir trjátegunda eða kvæma af tiltekinni tegund fjalla gjarna um hve vel viðkomandi tegund sé aðlöguð veðurfarsþáttum á vaxtarstað. Við færslu tegunda milli landsvæða um langan veg, eins og mestöll skógrækt á Íslandi byggir
á, er veðurfarsþátturinn afar þýðingamikill. Tilraunir sem leita svara um jarðvegsþætti eru oftast tengdar ræktunartækni s.s. jarðvinnslu, næringrefnaframboði, áburðarnotkun og plöntugerðum.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BS_lokaritgerð_Sæmundur.pdf | 2.45 MB | Opinn | Skoða/Opna |