is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Landbúnaðarháskóli Íslands > Umhverfisdeild (2005-2016) > B.S. verkefni - Umhverfisdeild >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/9256

Titill: 
  • Áhrif Borgarfjarðarbrúar á lífríki og kornastærð í Borgarfjarðarfjörum
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Áhrif þverunar Borgarfjarðar með Borgarfjarðarbrú fyrir 30 árum er viðfangsefni þessarar rannsóknar og er um að ræða endurtekningu á sambærilegri úttekt sem gerð var árið 1973. Markmið rannsóknarinnar er tvíþætt; annars vegar að kanna breytingar í í fjörulífi og hins vegar að mæla breytingar í kornastærðardreifingum. Tegundafjölbreytileiki er borinn
    saman,heildarlífþyngd, þéttleiki á einstökum svæðum og þéttleiki einstakra tegunda. Tekin voru 60 fjörusýni á 30 stöðvum og dýr greind til tegunda eða hópa. Fjöldi og þyngd reiknað á m2 í öllum tilfellum og borið saman við fyrri rannsókn. Kornastærðarsýni voru tekin á hverri stöð og kornastærðardreifing borin saman við fyrri rannsókn. Lífríki hefur breyst með tilkomu Borgarfjarðarbrúar. Tegundafjölbreytileikinn er minni, færri
    hafrænar tegundir eru á svæðinu, og þéttleiki einkennistegundarinnar er meiri á einstökum svæðum. Heildarlífþyngd hefur minnkað um helming og landrænar tegundir hafa komið inn í litlum mæli. Þrenging vegna brúarinnar hefur valdið því að ferskvatn helst lengur ofan við brú og hindrar sjávarföll upp fjörðinn sem gerir ferskvatnsáhrif í firðinum meiri. Brúin hægir á útrennsli Hvítár sem veldur uppsöfnun efna ofan við brú og framrennsli sands út fjörðinn er minna. Meðalkornastærð er mjög marktækt grófari á öllum svæðum fjörunnar
    og silt eða leirufjörur eru ekki lengur á svæðinu.

Styrktaraðili: 
  • Vegagerð ríkisins
Samþykkt: 
  • 20.6.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/9256


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
HRAFNHILDUR_TRYGGVADOTTIR_BS.pdf1.37 MBOpinnPDFSkoða/Opna