Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/44858
Tímabilið í kringum breytingaskeið kvenna er óneitanlega erfitt tímabil í lífi margra kvenna. Miklar hormónabreytingar verða í líkamanum og konur upplifa margþætt líkamleg og andleg einkenni þess að hætta á blæðingum. Tíðahvörf verða hjá öllum konum sem ná þeim forréttindum að eldast nægilega mikið og eru einkennin oft mikil og óþægileg. Sýnt hefur verið fram á það að líkamleg hreyfing geti minnkað þessi neikvæðu einkenni töluvert. Vatn hefur lengi verið notað til heilunar og vellíðunar og er hreyfing í vatni góð leið til þess að ná inn daglegri hreyfingu auk þess sem vatnið er ákjósanlegur staður til þess að stunda hreyfingu án þess að því fylgi aukið álag á liði og bein líkamans. Heita vatnið, stöðuþrýstingurinn, þéttleiki vatnsins, og flotið geta gert undur til þess að auðvelda hreyfinguna og virkja vöðvana betur en hreyfing á þurru landi myndi gera. Sýnt hefur verið fram á það að styrktarþjálfun neðri útlima í vatni er góð til þess að viðhalda eða bæta styrk kvenna á þessum aldri og eru efnistök þessarar ritgerðar því að skoða styrktarþjálfun kvenna í vatni þar sem lögð er áhersla á neðri útlimi líkamans. Niðurstöður gáfu til kynna að beygja og rétta á hné og mjöðm eru þær æfingar sem virðast vera hvað áhrifaríkastar í vatni er styrk varðar.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BSc ritgerð - Svanhildur.pdf | 280,18 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
Handbók BS ritgerð.pdf | 18,92 MB | Opinn | Fylgiskjöl | Skoða/Opna |