Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/44882
Framkvæmdar voru líkamlegar mælingar á íslenskum knattspyrnumönnum á aldrinum 14-21 árs. Um er að ræða samstarfsverkefni milli Knattspyrnusambands Íslands og Háskólans í Reykjavík. Tilgangur þessa verkefnis var að skoða hvort tengsl væru á milli frammistöðu í hraða og stökkmælingum hjá unglingalandsliðsmönnum í knattspyrnu. Alls tóku 278 leikmenn þátt í rannsókninni og framkvæmdu þeir nokkur líkamleg próf en í þessu verkefni voru skoðaðar niðurstöður úr 5x30m hraðaþolsprófi og CMJ stökkmælingum með og án handasveiflu. Mælingarnar fóru fram í Miðgarði í Garðabæ og Skessunni í Hafnarfirði á tímabilinu 2.mars 2021 til 7.febúar 2023. Markmiðið var að mæla líkamlegt atgervi íslenskra unglingalandsliðsmanna. Frammistöður þátttakenda í lóðréttu jafnfætisstökki með og án handasveiflu var skoðað í samanburði við hraðasta 30m sprett þeirra annars vegar og við 10m sprett þeirra hins vegar. Miðlungs sterk marktæk fylgni fannst á milli frammistöðu í CMJ stökkmælingu með handasveiflu og 30m spretts r = -0.560. Einnig fannst miðlungs sterk marktæk fylgni á milli frammistöðu í CMJ stökkmælingu án handasveiflu og 30m spretts r = -0.542. Miðað við niðurstöður rannsóknarinnar má draga þá ályktun að þeir leikmenn sem ná góðum tíma í hraðasta 30m sprettinum sínum í 5x30 hraðaþolsprófinu eru líklegir til að standa sig vel í CMJ stökkmælingum með og án handasveiflu. Fyrri rannsóknir hafa yfirleitt sýnt fram á slíkt hið sama en einnig hafa þær í færri tilvikum sýnt fram á að lítil sem engin tengsl séu þarna á milli og að hraði og stökkkraftur sé algjörlega sitthvor eiginleikinn.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BSC lokaverkefni Kristján Atli Marteinsson.pdf | 452,8 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |