Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/44890
Framkvæmd var rannsókn með það markmið að kanna skilning viðskiptafræðinema á verðbréfum og hvaða þættir hafa áhrif á skilning. Þeir áhrifavaldar sem kannað var eru kyn, hvort einstaklingur hafi fjárfest áður og í hvaða háskóla einstaklingurinn er. Tvær rannsóknir voru framkvæmdar, megindleg rannsókn í formi könnunar og eigindleg rannsókn í formi viðtals. Megindlega rannsóknin krafðist þess að rannsakendur fóru í Háskólann í Reykjavík og Háskóla Íslands til að finna þátttakendur, í heildina voru 112 manns sem tóku þátt í könnuninni. Fyrir eigindlegu rannsóknina var talað við viðskiptafræðing sem útskrifaðist úr Háskólanum í Reykjavík sem starfar nú á ráðgjafasviði verðbréfafjárfestinga. Gögn voru greind með “kí- kvaðrat” tölfræðipróf og lýsandi tölfræði. Niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós að skilningur er háður kyni, þar að segja karlar sýndu fram á meiri skilning. Einnig sýndu niðurstöður að skilningur er háður hvort einstaklingur hefur fjárfest áður eða ekki, þar sem þeir sem hafa fjárfest áður komu mun betur út. Mátti svo einnig sjá að skilningur er ekki háður í hvaða háskóla einstaklingurinn er í. Niðurstöður leiddu enn fremur í ljós að þekkingarleysi og lítil kunnátta eru þeir helstu þættir sem eru að stoppa viðskiptafræðinemendur til að byrja eiga
verðbréfaviðskipti.
Lykilorð: Verðbréf, fjárfestingar, viðskiptafræði, fjármálalæsi
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Viðskiptafræðinemar og fjárfestingar.pdf | 1,27 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |