Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/4493
Samkeppni á íslenskum kjötvörumarkaði er mikil miðað við stærð markaðarins. Þær upplýsingar sem geta gefið fyrirtæki vísbendingar með hvaða hætti neytendur skynja það og vörumerki þess eru mikilvægar þar sem hægt er að bera saman þá ímynd sem fyrirtækið vill hafa og þá ímynd sem fyrirtækið hefur samkvæmt skynjun neytenda. Ef skynjuð ímynd er ekki sú sem fyrirtækið óskar eftir er hægt að kortleggja hana með ýmsum tækjum markaðsfræðinnar. Staðfærsla er eitt af þeim tækjum sem geta mótað ímynd fyrirtækis og vörumerkis þess. Staðfærsla vörumerkis eða fyrirtækis gengur út á það, að staðsetja vörumerkið í huga neytenda með aðstoð aðgreinandi þátta í þeim tilgangi að reyna að móta ákveðna ímynd þess hjá neytandanum.
Meginmarkmið þessa verkefnis er að greina með aðferðum og tækjum markaðsfræðanna hver ímynd og staðfærsla matvælafyrirtækisins Kjarnafæðis hf. er samanborið við þeirra helstu samkeppnisaðila. Framkvæmd var megindleg rannsókn í samvinnu við fyrirtækið með það að markmiði að fá vísbendingar um með hvaða hætti neytendur sjá fyrirtækið og vörumerki þess samanborið við samkeppnisaðila. Kjarnafæði er með breytt vöruúrval kjötvara og var því áhugavert að skoða hvernig staða þeirra er á markaði gagnvart öðrum.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
snorri_kristj_pdf.pdf | 3.36 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |