is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Hug- og félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/44931

Titill: 
  • Upplifun Íslendinga af sóló ferðalögum : helstu hvatar og hindranir
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Sóló ferðalög eru einstök upplifun sem af ýmsum ástæðum ekki allir fá að njóta. Á slíkum ferðalögum kynnist fólk yfirleitt sjálfu sér betur og í því samhengi er oft talað um persónulega þróun einstaklinga á ferðalögum. Tækifæri fæst til þess að upplifa heiminn á einstakan hátt og á eigin forsendum. En það er einmitt þetta frelsi við að haga ferðalaginu eftir eigin höfði og gera algjörlega það sem maður vill án þess að þurfa að taka tillit til ferðafélaga sem er talinn einn af helstu kostum þess að ferðast einn. Hins vegar fylgja því líka ókostir eins og skortur á öryggi ásamt því að hafa engan til þess að deila með gleði, sorgum og upplifun á meðan á ferðalaginu stendur. Í þessari ritgerð fáum við innsýn inn í heim íslenskra sóló ferðamanna þar sem þeir lýsa upplifun sinni af slíkum ferðalögum. Markmiðið er að greina helstu hvata og hindranir til sóló ferðalaga. Til þess voru tekin viðtöl við sex einstaklinga á aldrinum 29-72 ára sem allir áttu það sameiginlegt að hafa farið einir í ferðalag. Niðurstöðurnar voru þær að Íslendingar upplifa sóló ferðalög á jákvæðan hátt . Helsti hvatinn fyrir því að velja sóló ferðalög var frelsið en helsta hindrunin öryggið. Allir viðmælendur voru þó sammála um að kostirnir við að ferðast einn væru fleiri en gallarnir og allir sem einn myndu þeir mæla með sóló ferðalögum.

  • Útdráttur er á ensku

    Solo travel is a unique experience that, for various reasons, not everyone gets to enjoy. Travelers get the opportunity to get to know themselves better and when asked about it they often mention the personal development those journeys have to offer. The opportunity to experience the world in a unique way and on their own terms. It is precisely this freedom that is one of the main advantages of traveling alone. To be able to organize the trip on their own and do exactly what they want without having to be considerate of the oppinions of their travel companion. There are also disadvantages to this arrangement, such as lack of security as well as having no one to share joys, sorrows and experiences during the journey.
    We will gain insight into the world of Icelandic solo travelers and their experiences. The aim is to identify the main motivations and barriers to solo travel. For this purpose, interviews were conducted with six persons aged 29-72, all of whom had one thing in common: having gone on a solo trip. The result was that Icelanders experience solo travel in a positive way. The main motivation for choosing solo travel was freedom, but the main obstacle was safety. However, all interviewees agreed that the advantages of traveling alone outweigh the disadvantages, and all of them would recommend solo travel.

Samþykkt: 
  • 12.6.2023
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/44931


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
BA ritgerð - Dagný Gylfadóttir.pdf476,48 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna