is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Hug- og félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/44957

Titill: 
  • Velferð barna í grunnskóla : samstarf við heimilin og fagmennska kennara
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Þessi lokaritgerð er til B.Ed.prófs í kennarafræðum við Háskólann á Akureyri. Velferð allra barna er útgangspunktur þessa verkefnis. Barnið er í brennidepli og er tilgangur þessarar ritgerðar að leitast við að skoða hvað það er sem styður við velferð barns í námi. Í því samhengi leitast höfundur við að varpa ljósi á það hversu mikið gott samstarf milli heimilis og skóla skiptir fyrir velferð og farsæld barna. Einnig verður skoðað hvort barn þeirra foreldra, sem styðja við nám barns síns og eru þátttakendur í skólastarfinu, sé líklegra til að njóta meiri velferðar og hvort það geti haft góð áhrif á gengi barns í skóla. Jafnframt er varpað ljósi á fagmennsku kennara og hvort og þá hvernig hún getur snert velferð barna. Í verkefninu var fyrst og fremst unnið með fræðilega heimildaröflun bæði á netinu og í fræðibókum. Verkinu er skipt upp í sex kafla auk inngangs og lokaorða. Í upphafi er umræða um almenna menntun og þá fer umfjöllun um hlutverk skóla í menntun og velferð barna. Regluverki og löggjöfum er lúta að velferð barna eru gerð skil. Því næst fara kenningar fræðimanna sem tengjast velferð barna og ber fyrst að nefna skilgreiningu White á velferð, því næst þarfapýramída Maslows sem byggir á grunnþörfum en þær eiga ríkan þátt í velferð barna og í lokin er Vistfræðikenning Bronfenbrenner sem horfir á barnið út frá umhverfinu og þá þætti sem geta haft áhrif á velferð þess. Frá kenningum er umfjöllun um nám barnsins og þátttaka þess, hvernig má byggja á reynslu þess í námi og nefndar leiðir sem eru líklegar til að auka velferð barns í námi. Þá er fjallað um samstarf heimilis og skóla og mikilvægi þess reifað. Síðasti kaflinn fjallar um fagmennsku kennara og framlag hans fyrir velferð barna. Höfundur komst að þeirri niðurstöðu að barn þeirra foreldra sem sýna námi barns athygli og eftirfylgni er líklegra að búa við velferð. Ef foreldrar og kennarar barna eru í góðu samstarfi og foreldrar eru þátttakendur í skólasamfélaginu getur það bætt velferð barna og haft áhrif á framgöngu þeirra í námi. Það er svo engum blöðum um það að fletta að fagmennska kennara getur ýtt undir velferð barna.

  • Útdráttur er á ensku

    An education system is a key in every society and education alone is a very important foundation for every individual's future. In this country, there is compulsory school attendance and it is urgent that schools emphasize equality and guarantee basic skills in education. According to the primary school curriculum, knowledge, skills and proficiency must be promoted in a child’s education. schools should contribute to comprehensive development of children, attend to the education of each and everyone and nurture the welfare of every individual (law on primary education nr. 91/2008). The school is responsible for preparing and graduating individuals for further education at secondary school level and/or other things that await them. The well-being of all children is the inception point of this project. In Bronfenbrenner’s Ecological Theory, it is the child that everything revolves around and the environment that affects its development. In that context the author tries to shed light on how good cooperation between home and school can be important for the children’s well-being and success. Additionally, it will be examined whether the child of parents who support their child's studies and are involved in the school's work, is more likely to enjoy more success and whether it has a positive impact on the child’s academic performance. Furthermore, interpret what effect professionalism of teachers has on children. The results of the author are that the children of parents who show attention and follow their child's studies are more likely to prosper. A positive cooperation of parents and teachers and the parents' participation in the school's society can have a positive impact on the child’s well-being and their educational progress. There is no doubt that the professionalism of teachers can promote a child’s fortune.

Samþykkt: 
  • 12.6.2023
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/44957


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
B.Ed.ritgerð - Aðalheiður.docx (1).pdf1,64 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna