is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Hug- og félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/44962

Titill: 
  • Læsi og lestrarkennsluaðferðir : byrjendalæsi
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Ritgerð þessi er lokaverkefni til B.Ed. prófs við kennaradeild Háskólans á Akureyri. Ritgerðinni er skipt í þrjá meginkafla. Ritgerðin hefst á almennri umfjöllun um læsi og lestrarkennslu. Fjallað verður um læsi í víðu samhengi og kafað ofan í lykilþætti sem liggja að baki þess. Lestur er mikilvægur þáttur í námi hvers barns og er mikilvægt að stuðlað sé vel að læsisnámi með nákvæmum aðferðum sem hafa það að markmiði að efla hæfni nemenda til lestrar á sem bestan hátt. Ekki er til ein lestrarkennsluaðferð sem hentar öllum og til þess að komið sé til móts við þarfir sem flestra er vænlegast að kennt sé eftir samvirkum aðferðum. Að læsisumfjöllun lokinni verður fjallað um Byrjendalæsi en það er samvirk lestrarkennsluaðferð sem hefur verið þróuð frá upphafi 21. aldar og hefur það að markmiði að koma til móts við þarfir sem flestra nemenda. Það þurfa ýmis skilyrði að vera til staðar til þess að Byrjendalæsi virki sem best og aðferðirnar sem Byrjendalæsi byggir á geti orðið íslensku skólakerfi að gagni. Að lokum er lögð fram tillaga að kennsluáætlun sem búin er til miðað við forsendur Byrjendalæsis.

  • Útdráttur er á ensku

    This thesis is the final project of a B.Ed. degree at the Faculty of Education at the University of Akureyri. The thesis is divided into three main chapters. It begins with a general discussion of literacy and reading instruction. Literacy will be discussed in a broad context and it´s key factors will be examined. Reading is an important part of every child's learning and it is important that literacy is strengthened well with precise methods aimed at improving a child's ability to read in the best possible way. There is no one-size-fits-all method of teaching reading, and to meet the needs of most students, it is best to teach using interactive methods. Byrjendalæsi is an interactive reading teaching method that has been developed since the beginning of the 21st century and aims to meet the needs of as many students as possible. Various conditions need to be met in order for the teaching method to fulfill its purpose and the methods can benefit the Icelandic school system. Finally, a lesson plan suggestion created based on the conditions of Byrjendalæsi is presented.

Samþykkt: 
  • 12.6.2023
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/44962


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
B.Ed.-Dagrún-Sól-og-Viktor-Ingi-LOKAYFIRFERÐ.pdf2,2 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna