is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Hug- og félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/45034

Titill: 
  • „War on drugs virkar ekki, þannig að við þurfum að finna nýjar leiðir“ : afglæpavæðing vörslu neysluskammta, viðhorf lögreglumanna
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Markmið ritgerðarinnar er að kanna ólík viðhorf lögreglumanna á afglæpavæðingu vörslu neysluskammta fíkniefna. Skoðuð var þróun fíkniefnalöggjafar í heiminum, þá sérstaklega fíkniefnastefnur Noregs, Portúgals og Hollands. Lög um ávana og fíkniefni nr. 65/1974 hafa lengi verið í umræðunni og telur fólk þörf á breytingum á þeim lögum. Skaðaminnkandi hugmyndafræði hefur færst í aukana síðustu ár og telur almenningur tímabært að horft verði á fíknivanda sem heilbrigðisvandamál. Skiptar skoðanir eru þó á viðfangsefninu og leiddi skoðanakönnun í ljós að einungis tæpur helmingur landsmanna telur tímabært að afglæpavæða vörslu neysluskammta. Í ritgerðinni er farið yfir þau frumvörp sem lögð hafa verið fyrir Alþingi um viðfangsefnið. Gerð var eigindlega rannsókn þar sem viðtöl voru tekin við sex starfandi lögreglumenn og þeir spurðir um álit sitt og viðhorf. Niðurstöður leiddu í ljós að flestir viðmælendur höfðu kynnt sér frumvarp um afglæpavæðingu neysluskammta og höfðu myndað sér skoðun á viðfangsefninu. Fimm viðmælendur af sex voru hlynntir afglæpavæðingu vörslu neysluskammta og töldu tímabært að fíknivandi væri skilgreindur sem heilbrigðisvandamál.

  • Útdráttur er á ensku

    The aim of this thesis is to explore the different opinions and perspectives of police officers on the decriminalization of personal use drug doses. The development of drug legislation in the world was examined, particularly the drug policies of Norway, Portugal and the Netherlands. The laws on addiction and narcotics No. 65/1974 have been in discussion for a long time and people believe that changes to that law are needed. Harm reduction ideology has increased in recent years, and the public believes it is time to look at addiction as a healthcare issue. However, there are divided opinions on the subject, and an opinion poll revealed that only almost half of the citizens in Iceland think it is time to decriminalize personal use drug doses. The thesis reviews the bills that have been submitted to parliament on the subject. A qualitative study was conducted in which six working police officers were interviewed and asked about their opinions and perspectives toward decriminalization. The results revealed that most interviewees had studied the bill on decriminalizing personal use drug doses and had formed an opinion on the subject. Five out of six participants were in favor of the decriminalization and believed that it was time that drug addiction was defined as a healthcare issue.

Samþykkt: 
  • 12.6.2023
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/45034


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Afglæpavæðing vörslu neysluskammta, viðhorf lögreglumanna.pdf548,4 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna