is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskólinn á Akureyri > Hug- og félagsvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/45080

Titill: 
  • „Við gerum kraftaverk á hverjum degi en segjum bara ekki frá því“ : reynsla grunnskólakennara af álagi og streitu í starfi.
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Á undanförnum árum hefur aukin vitundarvakning orðið meðal
    sérfræðinga sem og almennings um afleiðingar vinnutengdrar
    streitu en rannsóknir á áhrifum hennar hafa aukið skilning á
    viðfangsefninu til muna. Fjöldi rannsókna, bæði innlendra og
    erlendra, hafa sérstaklega skoðað álag og streitu í starfi
    grunnskólakennara. Niðurstöður rannsóknanna benda til þess að
    grunnskólakennarar upplifi mikið álag og því sé nauðsynlegt að
    skoða vel hvað hefur áhrif og hvernig er hægt að bregðast við.
    Markmið þessarar rannsóknar er að varpa ljósi á reynslu íslenskra
    grunnskólakennara af álagi og streitu í starfi, hvernig það
    endurspeglast og hver áhrifin og afleiðingarnar eru á líðan og
    starfsánægju kennara. Áhrif álags og streitu í starfi
    grunnskólakennara hefur lítið verið rannsakað á Íslandi en
    tilgangur þessarar rannsóknar er að auka skilning og dýpka
    þekkingu á álagstengdum og streituvaldandi þáttum í starfi
    grunnskólakennara. Á sama tíma verða verndandi og jákvæðir
    þættir starfsins dregnir fram en það er mikilvægur liður í leiðum til
    úrbóta. Markmiðið í þessari rannsókn er því jafnframt að koma auga
    á þætti sem draga úr streitu og álagi í starfi grunnskólakennara og
    auka vellíðan og starfsánægju.
    Tíu grunnskólakennarar tóku þátt í rannsókninni, níu konur og
    einn karl. Notuð var eigindleg aðferðafræði og hálf-opin viðtöl tekin
    við þátttakendur.
    Rannsóknarniðurstöður benda til þess að grunnskólakennarar
    upplifi mikið álag í starfi vegna margþættra verkefna. Mikið
    vinnuálag og takmarkaður tími til að sinna fyrirliggjandi verkefnum
    einkenndi líðan viðmælenda sem töldu umfang starfs síns þess eðlis
    að því væri sjaldnast lokið. Viðmælendur töldu mikilvægt að
    stjórnendur átti sig á hve íþyngjandi verkefnastaðan getur verið svo
    þeir geti sýnt raunverulegan skilning og stuðning á starfi
    grunnskólakennara. Félagastuðningur og teymisvinnubrögð höfðu
    mikil og jákvæð áhrif á stafsánægju, vellíðan og velgengni
    viðmælenda. Huga þarf sérstaklega að leiðum til úrbóta sem styðja
    við grunnskólakennara í starfi og ýta undir vellíðan og starfsánægju
    þeirra.

  • Útdráttur er á ensku

    Increased awareness and recognition in the recent years of work-related stress, and the importance of dealing with it, has brought
    more understanding in the subject than before. Numerous studies
    indicate that workload and work-related stress among primary
    school teachers is too high. It is important to look more closely into
    the reasons why this is happening because it can have serious
    consequences and effects on the teacher's health and wellbeing.
    This subject hasn’t been previously studied in-depth among
    Icelandic primary school teachers, but the purpose of this study is
    to increase understanding and deepen knowledge of stress-related
    and stressful aspects of teachers’ work. In addition, the protective
    and positive aspects of the work environment will be highlighted in
    ways of improvement. The aim of this research is to shed light on
    primary school teachers’ experience of workload and work-related
    stress, as well as the consequences of that stress and how it reflects
    and effects their well-being and job satisfaction. The aim of this
    research is also to explore what can possibly be done to reduce stress
    and workload to increase teachers’ well-being and job satisfaction.
    Ten primary school teachers participated in the study, nine
    females and one male. A qualitative approach was used based on
    semi-structured interviews.
    The main findings suggest that primary school teachers find
    their work to be extensive and generally stressful due to the amount
    of different tasks they have to perform. A great deal of tasks and
    limited time to carry them out was symbolic to the well-being of the
    participants. The participants thought it was important that
    administrators realized and understood how workload effected the
    teachers’ well-being, that way administrators could step in and
    show support in time of need. The participants also felt that support
    and collaboration among teachers had a profound impact on their
    well-being and success at work. Closer attention must be paid to
    finding ways to improve working environment of primary school
    teachers for the greater good.

Samþykkt: 
  • 12.6.2023
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/45080


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Meistararitgerd_AnnaRosaFridriksdottir.pdf1,99 MBOpinnPDFSkoða/Opna