is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskólinn á Akureyri > Heilbrigðis-, viðskipta- og raunvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/45089

Titill: 
  • Þjónusta sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfara á Íslandi árin 2002-2020 : afturskyggn lýsandi rannsókn með áherslu á eldra fólk sem bjó heima
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Bakgrunnur: Með auknum lífslíkum þjóðarinnar eru líkur á aukinni þjónustuþörf fyrir eldra fólk innan heilbrigðis- og velferðarkerfisins.
    Markmið: Að skoða umfang, þróun og eðli þjónustu sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfara með samning við Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) árin 2002-2020, með áherslu á hlutdeild fólks sem bjó í heimahúsi og var 65 ára og eldra (>65 ára).
    Aðferð: Afturskyggn lýsandi rannsókn. Gögn fengust úr gagnagrunni SÍ. Úrtakið voru allir sem fengu meðferð hjá sjúkraþjálfurum með samning við SÍ á rannsóknartímabilinu.
    Niðurstöður: Árlegum meðferðarlotum í sjúkraþjálfun fjölgaði um 156% frá 2002-2019 en fækkaði lítillega árið 2020, vegna sérstakra aðstæðna í þjóðfélaginu og því valið að bera saman árin 2002 og 2019. Hlutdeild >65 ára jókst um 19,9%. Meirihluti skjólstæðinga voru konur (60,4%) en hlutdeild karla jókst yfir tímabilið einkum meðal >65 ára (18,3% aukning). Þeir sem voru >65 ára þurftu yfir tímabilið fleiri komur í hverri meðferðarlotu en hinir yngri (p<0,0001) og fólk >85 ára þurfti flestar komur meðferðalotu. Komum í hverri meðferðalotu fækkaði um 27,7% yfir tímabilið en minna meðal >65 ára (23,7%) en 31% hjá þeim yngri. Komur í hverri meðferðalotu voru fleiri í þéttbýli en dreifbýli hjá >65 ára einstaklingum allt tímabilið og fækkaði meira í dreifbýli en þéttbýli milli áranna 2002 og 2019. Hlutur hópmeðferðar og bráðameðferðar jókst hjá öllum aldurshópum. Algengustu sjúkdómsgreiningar voru úr kaflanum sjúkdómar í vöðva- og beinakerfi og í bandvef, óháð aldri.
    Ályktanir: Á þessari öld hefur sjúkraþjálfun utan stofnana aukist, einkum meðal eldri einstaklinga. Meðferðaform hafa breyst nokkuð og hver meðferðarlota felur í sér færri komur en áður. Hækkandi aldri fylgir þörf fyrir fleiri komur og búseta hefur áhrif á nýtingu þjónustunnar. Niðurstöðurnar sýna aukna þörf á þjónustu sjúkraþjálfara, ekki síst við hóp eldri einstaklinga.

  • Útdráttur er á ensku

    Background: With increased longevity of the Icelandic nation, the need for health services among older adults is likely to grow.
    Aims: To examine the scope and utilisation of outpatient physiotherapy services (OPS) in Iceland during 2002-2020, with emphasis on older adults (≥ 65 years).
    Method: A retrospective observational study. Data was retrieved from the nationwide register of the Icelandic Health Insurance Agency for 2002-2020.
    Results: The total annual number of OPS treatment periods increased by 156% in 2002-2019, but decreased somewhat in 2020. As the COVID-pandemic skewed everything in 2020, year 2019 probably reflects the changes with time more fairly. The proportion of older adults increased by 19.9%. The majority of clients were women (60,4%), but gender imbalance decreased by time, especially among the older adults, where men increased their proportion by 18.3%. Older adults needed more sessions per OPS period than the younger population (p<0.0001) and clients ≥ 85 years had most sessions per OPS period. Number of sessions per OPS-period decreased on the whole by 27.7% in 2002-2019, but only by 23.7% for the older adults. Older adults in rural areas had fewer sessions per OPS period than their urban agemates in 2002, and the formers session numbers decreased more than their urban counterparts during 2002-2019. The proportion of acute- and group-sessions increased for the whole client-population. The most common reasons for OPS were diseases of the musculo-sceletal system in all age-groups.
    Conclusions: The utilisation of OPS has escalated during 2002-2020, especially among older adults. The OPS has evolved somewhat towards more group-sessions and fewer sessions per treatment period. More OPS-sessions are needed with increased clientele age, and rural-urban inequity is evident. Our results show clearly increased need for OPS, especially among older adults.

Athugasemdir: 
  • Ritgerðin er lokuð til 30.05.2026
Samþykkt: 
  • 12.6.2023
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/45089


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Þjónusta sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfara á Íslandi árin 2002 til 2020.pdf1,24 MBLokaður til...30.05.2026HeildartextiPDF