is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskólinn á Akureyri > Heilbrigðis-, viðskipta- og raunvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/45093

Titill: 
  • Reynsla dæmdra afbrotamanna af æskuáföllum
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Útdráttur er á ensku

    Víða um heim hafa rannsóknir sýnt að há prósenta dæmdra afbrotamanna upplifðu æskuáföll af ýmsu tagi og hafa gengið í gegnum lífið með þau áföll ómeðhöndluð. Bein tenging hefur fundist á milli áfalla í æsku og
    afbrotahegðunar.
    Tilgangur þessarar rannsóknar er að skoða reynslu dæmdra afbrotamanna af
    æskuáföllum og auka þekkingu og dýpka skilning á reynslu þeirra. Þá
    þekkingu er svo hægt að nýta til að setja saman þverfaglega betrunarstefnu í íslenskum fangelsum sem tekur á afleiðingum áfalla. Rannsóknaraðferðin sem stuðst var við var Vancouver-skólinn í fyrirbærafræði. Þáttakendur voru tíu karlmenn sem hafa reynslu af æskuáföllum og hafa fengið fangelsisdóm.
    Tekin voru tvö til þrjú viðtöl við hvern þátttakanda eða þar til mettun gagna hafði náðst.
    Meginniðurstöður rannsóknar eru að reynsla þátttakenda af æskuáföllum
    hafði áhrif á afbrotahegðun þeirra.
    Fimm meginþemu voru sett fram:
    Streita og kvíði, skömm, hugarfarsbreyting eftir áfall, brotin sjálfsmynd og áhættuhegðun.
    Gríðarleg vanlíðan, líkamleg jafnt sem andleg, fylgdi áföllum.
    Þátttakendur höfðu ekki gert sér grein fyrir sumum áföllunum fyrr en þeir fóru að tala um þau í rannsókninni og upplifðu létti og betri líðan eftir á. Þeim finnst þeir allir hafa verið sviknir af sínum nánustu og af „kerfinu“ þegar þeir voru ungir drengir.
    Niðurstöður benda til að ungir drengir sem lenda í áföllum fá ekki nægilega aðstoð. Setja þyrfti á fót kerfi sem skimar fyrir og tekur á æskuáföllum drengja og fullorðinna karlmanna. Þá má benda á létti og betri líðan þátttakenda eftir viðtölin úr þessari rannsókn sem góðan grundvöll fyrir samtalsmeðferð fyrir afbrotamenn sem hafa upplifað æskuáföll.

  • Background: Childhood trauma can have many implications later in life. Research around the world has shown that a high percentage of convicted felons have had childhood trauma of some kind and have gone through life without being treated. A direct link has been found between childhood trauma and criminal behavior.
    The purpose of this study is to find out what kind of experiences convicted felons have of childhood trauma and deepen the knowledge and understanding of their experience. Use that knowledge for a multidisciplinary rehabilitation program within the Icelandic prison system which focus on the effects of trauma.
    The research method was the Vancouver-school of phenomenology. Participants were 10 males that have experienced childhood trauma and have had a prison sentence. Two to three interviews were conducted with each person or until full saturation of data had been completed.
    Results: Main results show a direct link between the childhood traumas participants suffered and later criminal behavior. Five main themes were presented: Stress and anxiety, shame, change in attitude after trauma, low self-esteem, and risk behavior. Both physical and mental health problems were implicated with the traumas. Participants did not realize some of the trauma until interviews were conducted and found a sense of relief and felt better afterwards. They feel that they have been betrayed by their close ones and by the system as young boys.
    Conclusion: Findings suggest insufficient support for young boys that experience trauma. A screening system should be implicated that screens for childhood trauma and provides therapy for both boys and adult men. How the participants felt relief and feeling better after the interviews suggest that conversational-model therapy could be useful for convicted felons with traumatic experiences

Samþykkt: 
  • 12.6.2023
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/45093


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Ottar meistararitgerd 1.5..pdf744,19 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna