is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskólinn á Akureyri > Heilbrigðis-, viðskipta- og raunvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/45095

Titill: 
  • Erfið reynsla í æsku : ACE og heilsufarslegur vandi á fullorðinsárum
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Inngangur: Rannsóknir hafa sýnt að ýmis konar heilsufarsvandi á fullorðinsárum getur tengst erfiðri reynslu í æsku (e.Adverse childhood experiences [ACE]). Unnið er með þennan heilsufarslega vanda í endurhæfingu en tengsl hans við ACE hafa ekki verið skoðuð hér á landi áður. Tilgangur þessarar rannsóknar var að kanna tengsl milli ACE og heilsufarslegs vanda meðal einstaklinga í endurhæfingu á Reykjalundi, kanna hvort munur sé á tengslum eftir kyni, aldri, ástæðu endurhæfingar og endurhæfingarsviðum.
    Efniviður og aðferð: Rannsóknin var afturvirk lýsandi þversniðsrannsókn. Þátttakendur voru 379 einstaklingar á leið inn á átta mismunandi endurhæfingarsvið Reykjalundar. Tölfræðileg úrvinnsla var unnin í SPSS, Statistic, 29. útgáfu.
    Niðurstöður: Svarhlutfall var 99%, 63,6% konur, 35,6% karlar og 0,8% kynsegin. Meðalaldur þátttakenda var 47 ár. Hátt hlutfall þátttakenda (81%) var með ≥1 ACE og 39% með ≥4 ACE. Hlutfall ≥4 ACE var hærra hjá konum en körlum og hæst í aldurshópnum 19-30 ára. Þátttakendur með áfallastreituröskun voru að meðaltali með hæsta ACE út frá ástæðu endurhæfingar og á Geðheilsusviði út frá endurhæfingarsviði. Helmingur þátttakenda hafði orðið fyrir einelti í æsku en það hlutfall var hæst (69%) á efnaskipta- og offitusviði.
    Ályktun: Mikilvægt er að auka þekkingu fagfólks á ACE og innleiða áfallamiðaða nálgun í endurhæfingu, þar sem vandi einstaklings er skoðaður í samhengi við fyrri reynslu. Skima þarf fyrir ACE í endurhæfingu og auka skilning á heilsufarslegum afleiðingum áfalla ásamt því að styðja við viðeigandi jákvæð bjargráð hjá hverjum og einum. Leggja þarf áherslu á frekari forvarnir á ACE og draga úr afleiðingum ACE.

  • Introduction: Research has shown that various types of health problems in adulthood can be linked to adverse childhood experiences (ACEs). Many people with health-problems seek rehabilitation. The aim of this study was to investigate the association between ACEs and health-problems among people receiving rehabilitation, and whether there are differences between gender, age groups, reason for rehabilitation or different areas of rehabilitation. Material and methods: This was a retrospective cross-sectional study. Participants were 379 individuals, in eight different areas of rehabilitation at Reykjalundur Rehabilitation Centre. Statistical processing was performed in SPSS, Statistic, 29th edition. Results: Response rate was 99%, women (63,6%), men (35,6%), non-binary (0,8%). Average age was 47 years. The results showed that 81% reported ≥1 ACEs and 39% reported ≥4 ACEs. The percentage for ≥4 ACEs was higher for women than man and was highest in the age group 19-30. Participants with PTSD had the highest average percentage of ACEs based on the reason for rehabilitation and the psychiatric team based on the area of rehabilitation. Half of participants had been bullied in childhood, but the percentage was highest (69%) in the obesity team. Conclusion: It is important to increase professional knowledge of ACEs and implement a trauma-oriented approach to rehabilitation. There is a need for screening for ACEs in rehabilitation as well as to increase understanding of the consequences of ACEs and help with positive coping strategies based on the person´s goal. Furthermore, put focus on prevention of ACEs and reduce the consequences..

Athugasemdir: 
  • Ritgerðin er lokuð til 10.06.2025
Samþykkt: 
  • 12.6.2023
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/45095


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
ACE og heilsufarslegur vandi.pdf880,01 kBLokaður til...10.06.2027HeildartextiPDF