is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskólinn á Akureyri > Heilbrigðis-, viðskipta- og raunvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/45096

Titill: 
  • Næringarástand eldra fólks í sjálfstæðri búsetu á Akureyri og nágrenni : lýsandi þversniðsrannsókn
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Bakgrunnur: Öldruðum kemur til með að fjölga hratt á næstu áratugum ef mannfjöldaspár ganga eftir. Með fjölgun í hópi eldra fólks má áætla aukið álag á heilbrigðiskerfið. Næringarástand eldra fólks í sjálfstæðri búsetu er vanrannsakað svið en ef næringarþörf þessa viðkvæma hóps er mætt má mögulega stuðla að auknum lífsgæðum, minni þjónustuþörf, færri legudögum á sjúkrahúsum og ótímabærum búferlaflutningi á öldrunarheimili. Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna næringarástand eldra fólks í sjálfstæðri búsetu á Akureyri sem fá þjónustu frá heimahjúkrun Heilbrigðistofnunar Norðurlands (HSN).
    Aðferð: Rannsóknin var þversniðsrannsókn. Heimahjúkrun skimaði skjólstæðinga sína (n=193), ≥65 ára í sjálfstæðri búsetu á Akureyri og nágrenni í mars 2022 með skimunartækinu „Mat á áhættu fyrir vannæringu“ sem finnst í Sögu sjúkraskrá. Skimunin gefur skjólstæðingunum stig (0-30) eftir því hve mikil áhættan er talin vera á vannæringu, þar sem hærri stig lýsa meiri áhættu. Við skimun þarf að skrá hæð og þyngd, skoða þyngdarsögu m.t.t. þyngdartaps, svara spurningum um t.d. ógleði, uppköst og niðurgang, erfiðleika við að kyngja eða tyggja, nýlega sjúkrahúslegu og aðgerð. Í lok skimunar gefur matstækið stig eftir svörum skjólstæðingsins.
    Niðurstöður: Miðgildi aldurs var 84 ár (IQR:10), miðgildi þyngdar 79 kg (IQR:24) og miðgildi líkamsþyngdarstuðuls (LÞS (kg/m2) 27,5 (IQR:7,5). Í heild voru 4% með LÞS <18,5 og 35% þátttakenda með LÞS ≥30. Alls reyndist 31,1% þátttakenda vera með ákveðnar líkur á vannæringu (3-4 stig) og 5,2% vera með sterkar líkur á vannæringu (≥5 stig). Ósjálfrátt þyngdartap undanfarið, dvöl á sjúkrastofnun og viðvarandi léleg matarlyst eða ógleði voru veigamestu áhættuþættirnir meðal þátttakenda sem höfðu ákveðnar eða sterkar líkur á vannæringu (≥3 stig).
    Ályktanir: Niðurstöðurnar sýna að 36% (n=70) einstaklinga í sjálfstæðri búsetu á Akureyri með þjónustu frá heimahjúkrun eru með ákveðnar eða sterkar líkur á vannæringu. Þörf er á forvörnum og íhlutandi aðgerðum til að stuðla að fullnægjandi næringarinntekt eldra fólks í sjálfstæðri búsetu.
    Lykilorð: Eldra fólk, vannæring, næringarástand, sjálfstæð búseta, þversniðsrannsókn, skimun, heimahjúkrun.

  • Background: The number of older adults will increase rapidly over the next few decades if population projections are accurate. With a higher proportion of older adults in the population, it can be expected that the workload in the healthcare system will increase. The nutritional status of community dwelling older adults is an understudied field, but the importance of meeting the nutritional needs of this vulnerable group may potentially lead to an improved quality of life, lower the need for services, decrease hospitalisations, shorten hospital stay, and prevent premature nursing home admission. Aim: To determine the nutritional status of community dwelling older adults in Akureyri who received home care nursing from the North Iceland Healthcare Institute (HSN).
    Method: This was a cross-sectional study. The home care nursing at HSN screened their community dwelling clients (n=193), ≥ 65 years, living in Akureyri and its surroundings in March 2022 using the screening tool "Assessment of risk for malnutrition" found in Medical Records. The screening gives the clients points (0-30) depending on the degree of risk of malnutrition, where more points describe a higher risk. The screening requires height and weight measurements, checking weight history for weight loss, and answering questions about, e.g., nausea, vomiting, diarrhoea, difficulty swallowing or chewing, recent hospitalisation and surgery. At the end of the questionnaire, the screening tool provided points based on the client’s answers.
    Results: The median age was 84 years (IQR:10), the median weight was 79 kg (IQR:24), and the median body mass index (BMI (kg/m2 ) 27.5 (IQR:7.5). Overall, 4% of the subjects had a BMI I <18.5 and 35% had a
    BMI ≥30. Participants at risk of malnutrition (3-4 points) were 31.1%,
    and 5.2% had a high risk of malnutrition (≥5 points). Involuntary recent
    weight loss, persistently poor appetite or nausea, and recent
    hospitalisation were the most prevalent risk factors among
    participants at risk of malnutrition (≥3 points).
    Conclusion: The results of this study showed that 36% (n=70) of older
    community dwelling adults in Akureyri who received formal care from
    nursing staff were at risk or at high risk of being malnourished. Preventive and interventional measures are needed to promote
    adequate nutritional intake in older adults living independently.

Styrktaraðili: 
  • Deild mennta og vísinda á Sjúkrahúsinu á Akureyri
    Lýðheilsusjóður
    Vísindasjóður Sjúkrahússins á Akureyri
    Félag Íslenskra hjúkrunarfræðinga
Athugasemdir: 
  • Ritgerðin er lokuð til 08.06.2026
Samþykkt: 
  • 12.6.2023
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/45096


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Næring eldra fólks Sandra Ásgrímsdóttir.pdf1,09 MBLokaður til...08.06.2026PDF