is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Listaháskóli Íslands > Tónlistardeild / Department of Music > Lokaritgerðir / Theses (BA, B.Mus) >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/45228

Titill: 
  • Klassískt form í nýjum búningi
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Í þessari ritgerð verður fyrsti kafli sellósónötu í C-dúr op. 119 eftir Sergei Prokofiev borinn saman við hið hefðbundna klassíska sónötuform. Kastljósinu verður aðallega beint að uppbyggingu og stefjaefni fyrsta kafla sónötunnar. Við samanburðinn er stuðst við kenningar William E. Caplin í bókinni hans frá 2013, Analyzing Classical Forms og kenningar James Hepokoski og Warren Darcy í bók þeirra Elements of Sonata Theory frá árinu 2006. Form, hraðabreytingar og tóntegundir sem koma fyrir í framsögu, úrvinnslu, ítrekun og kóda, verða skoðuð ítarlega. Útskýrt verður hvernig Prokofiev fylgir stefjaformi klassísku sónötunnar en um leið hvernig hann aðlagar formið að eigin tónmáli. Hljómasambönd og ómstríðir hljómar sónötunnar verða teknir til skoðunnar.
    Stuttlega verður farið yfir ævi Prokofiev og hvað varð til þess að hann hóf að semja sellósónötuna. Einnig verður reifað hvernig Prokofiev kynnist sellóleikaranum Mstislav Rostropovich. Farið verður yfir hvernig Prokofiev víkur frá klassíska forminu varðandi notkun tóntegunda, undirbúning og lausnir hljóma. Niðurstöður þessarar ritgerðar leiddu í ljós að mörg stefjanna styðjast við hefðbundin stefjaform en gjarnan án almennilegs niðurlags.

Samþykkt: 
  • 19.6.2023
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/45228


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Lokaritgerd B.mus_SoffiaJons.pdf8,02 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna