Please use this identifier to cite or link to this item: https://hdl.handle.net/1946/45314
Lengi hefur sjórinn tekið við
Með aukinni losun á koltvísýringi erum við að breyta hafinu í súrara umhverfi sem leysir upp skeljar kalkmyndandi lífvera í stað þess að byggja þær upp. Rannsóknir sýna að súrnun er hraðari í köldum sjó en heitum, en í verkinu er litið sérstaklega til kalkmyndandi lífvera við Íslandsstrendur, þá má nefna lífverur á borð við samlokur, krabba og kóralla. Þessar lífverur verða hvað fyrstar fyrir alvarlegum áhrifum umhverfisbreytinga og eru þær jafnframt grunnur fæðukeðju sjávarlífvera. Með táknrænum gripum, sem unnir voru í samtali við sérfræðinga í hafvísindum, fær áhorfandi innsýn í breyttan heim skeldýra. Leitast er við að sýna samtvinnun umhverfis og áframhaldandi röskunar á vistkerfi sjávar.
| Filename | Size | Visibility | Description | Format | |
|---|---|---|---|---|---|
| Hönnunargreining - Lengi hefur sjórinn tekið við.pdf | 5,39 MB | Open | Complete Text | View/Open |