Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/45333
Verkið Voð er hljóðinnsetning þar sem fimm hljóðeiningum er raðað um rými og einskonar hljóðumhverfi búið til. Einingarnar eru upptökur af tónlist sem hafa verið yfirfærðar á segulbandstæki, kassettutæki og lúpp-pedala. Þessar einingar eru settar í lúppu og spilaðar tilviljanakennt saman inni í rýminu, þannig að nýjar útsetningar verða stöðugt til. Einingarnar eru eins og þræðir sem vefast saman á sífellt nýja vegu, eins og voð úr tónum sem fylla rýmið, en þaðan kemur einmitt heiti verksins. Hér verður verkið greint og gerð grein fyrir hugmyndunum á bakvið það. Einnig verða skoðuð fyrri verk, áhrifavaldar verksins og settar fram hugleiðingar um tónsmíðaferlið.
| Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
|---|---|---|---|---|---|
| asa-olafs-greinargerd-ba-2.pdf | 124,1 kB | Opinn | Greinargerð | Skoða/Opna |