is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Listaháskóli Íslands > Listkennsludeild / Department of Arts Education > Lokaritgerðir / Theses (MA, M.Art.Ed.) >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/45363

Titill: 
  • Frelsi til menntunar : sjálfstætt nám í gegnum listkennslumyndbönd
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Í verkefninu Frelsi til menntunar: Sjálfstætt vídeó nám rannsaka ég sjálfstætt nám í gegnum listkennslumyndbönd og móta aðferðir til framleiðslu á slíku námsefni. Sjálfstætt nám í gegnum listkennslumyndbönd á ýmislegt sameiginlegt við fjarnám og vendikennslu (e. Flipped Learning), en ákveðin lykilatriði skilja á milli þessara kennsluaðferða. Ég velti sérstaklega fram þeim göllum sem felast í gjánni milli nemenda +og kennara í sjálfstæðu námi. Samskipti, sem teljast til mikilvægustu þátta listnáms, geta aldrei átt sér stað milli einstaklinga sitt hvoru megin við skjáinn í listkennslumyndböndum. Þrátt fyrir þennan dragbít hafa svona löguð myndbönd verið hluti af menningarvefnaði heimsins allt frá upphafi sjónvarpsútsendinga á fyrri hluta 20. aldar, þökk sé kennurum eins og Jon Gnagy, William Alexander og Bob Ross. Hvað sem hverjum finnst þá eru listkennslumyndbönd enn þá framleidd, og þau væru það ekki ef enginn væri að horfa á þau. Sjálfur hef ég til að mynda menntað mig í fjölbreyttum miðlum í gegnum listkennslumyndbönd, þar á meðal á sviðum vídeólistar. Myndlistin og áhugi minn til framleiðslu á eigin listkennslumyndböndum eru forsendur þessa verkefnis. Sú nálgun var þar af leiðandi tekin að rannsaka þetta kennsluform með aðferðum listrannsókna. Meginafurðir þessa verkefnis eru listkennslumyndbandið Málum saman með Antoni Loga og aðferðabanki sem ég byggði í kjölfar reynslu af framleiðslu myndbandsins. Hér stendur annars vegar eftir listkennslumyndband um þrautseigju, tilraunagleði, sköpunarferli, landslagsmálverk og litablöndun; og hins vegar þrískipt nálgun á framleiðslu listkennslumyndbanda með tólf skilgreindum aðferðum.

Samþykkt: 
  • 20.6.2023
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/45363


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Anton Logi Ólafsson_Meistaraverkefni 2023_Frelsi til menntunar - Sjálfstætt nám í gegnum listkennslumyndbönd.pdf1.43 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna