Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/45370
Ég held að ég sé bara ég og ekkert annað, að listin mín sé algerlega frumleg og uppsprottin einungis úr mér sjálfri. En ég er víst ekki ein í heiminum. Í þessari ritgerð reyni ég að tengja sjálfa mig og listina mína við stærra samhengi, og finna áhrifavalda í mínum verkum. Ég skoða skilgreininguna á játningaljóðum og kanna hvernig megi skilgreina þau ljóð sem ég skrifa. Þá set ég mín skrif sérstaklega í samhengi við játningaljóð Sylviu Plath, og ber saman líkindi og ólíkindi milli verka okkar. Ég rýni í ryþmann í textunum mínum og velti því upp hvort að tenging sé til staðar við hljóðljóð Dadaista á fyrri hluta 20. aldar. Ég greini frá því hvernig ég nota liti í mínum listaverkum, og hvernig mín litatáknfræði tengist og/eða skarast á við aðrar og hefðbundnari hugmyndir um liti. Að lokum fjalla ég stutt um mitt ferli í listsköpun, sem einkennist meðal annars af því að ég vinn mikið með gamalt efni úr mínum persónulegu söfnum, og reyni að breyta sem minnstu því sem hefur þegar orðið. Ég kemst að þeirri niðurstöðu að ég er ekki ein í heiminum og er undir miklum áhrifum frá listaverkum annarra, sérstaklega frá 20. öld.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
GudnyMargret-BAritgerd-2023.pdf | 2,07 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |