is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Listaháskóli Íslands > Myndlistardeild / Department of Fine art > Lokaritgerðir / Theses (BA) >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/45376

Titill: 
  • Mála einn mála saman
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Í þessari ritgerð langar mig að fjalla um það sem mér finnst gott í myndlist: Að ná að vinna einn eða með öðrum, gleyma sér í góða stund og skapa eitthvað sem getur hreyft við fólki. Miðillinn sem ég mun taka fyrir í þessari ritgerð er málverkið, hvort sem það er á striga eða vegg, þar sem sá miðill hefur verið mjög stór partur af lífi mínu og sköpunarferli. Mig langar að tala um verk sem mér finnst vera góð og rökstyðja svo afhverju mér finnst þau vera það. Ég snerti þar á því sem hefur veitt mér innblástur í gegnum tíðina, hvort sem það eru málarar sem máluðu fyrir hundrað árum, graffarar sem eru enn að eða vinir mínir og samtímamenn.
    Allt sem var í kringum mig þegar ég var yngri, sérstaklega graff, hafði mjög mótandi áhrif á hvernig ég hugsa í dag en sérstaklega hvernig ég hugsaði þegar ég var í kringum tvítugt. Mér fannst spennandi að kafa aðeins dýpra í menninguna sem umlykur þennan miðil, hvað er jákvætt við hana og hvað er neikvætt.
    Mikilvægur þráður í ritgerðinni varðar það að geta gleymt sér í augnablikinu og búið til eitthvað gott úr því. Ég mun tala um menn sem mér finnst hafa náð þessu fyrir alvöru og gert mjög fallega hluti í kjölfarið. Fyrir mér náðu þeir raunverulega að leika sér í list og lífi. Svoleiðis leikur getur skapað svo rosalega góða stemningu sem er full af flæði og vellíðan en getur líka farið út í algjört rugl ef ekki er farið með hann rétt. Þeim tókst að halda sér við efnið nokkuð reglulega út mestalla ævi sína og koma frá sér verkum sem hafa breytt landslagi myndlistar til hins betra. Það er markmiðið.

Samþykkt: 
  • 20.6.2023
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/45376


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Mála einn mála saman .pdf18,03 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna