Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/45446
Í starfi með börnum og unglingum í félagsmiðstöð vaknaði áhugi höfundar á að skoða viðhorf nemenda til samfélagsgreina. Umfang samfélagsgreina í aðalnámskrá hafa tekið miklum breytingum frá fyrstu útgáfu fyrstu námskrá og hafa fjölmargar greinar á borð við lífsleikni og trúarbrögð verið sameinaðar samfélagsgreinum. Samfélagsgreinar eru því fjölþætt og umfangsmikil námsgrein sem nær yfir vítt svið námsgreina. Viðhorf ungmenna hefur lítið verið rannsakað og hafa nemendur ekki fengið tækifæri til þess að koma skoðunum sínum á framfæri. Tilgangur þessa verkefnis er að er að kanna viðhorf til samfélagsgreina og áhrifaþætti þess. Þessari ritgerð er ætlað að svara rannsóknarspurningunni: Hvert er viðhorf nemenda á unglingastigi og foreldra barna á unglingastigi til samfélagsgreina og kennslu þeirra? Notast var við eigindlega rannsóknaraðferð í formi rýnihópaviðtala og voru hóparnir tveir. Niðurstöður rannsóknarinnar bentu til þess að nemendur telja samfélagsgreinar mikilvægar, áhugaverðar og skemmtilegar sem bendir til þess að viðhorf þeirra til samfélagsgreina sé jákvætt. Foreldrar töldu samfélagsgreinar ekki mikilvægar í námi barna sinna á sama tíma voru þeir ekki meðvitaðir um umfang greinarinnar. Ekki er hægt að alhæfa út frá niðurstöðum rannsóknarinnar sökum þess hversu smá hún var. Samhliða rannsókn höfundar er fjallað um eftirfarandi samfélagsgreinar í aðalnámskrá, markmið samfélagsgreina, viðhorf og greiningu þess ásamt því að fjalla um kennslu samfélagsgreina.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
B.Ed-Gabríela-Líf-Ragnarsdóttir-Tilbúin.pdf | 431,53 kB | Opinn | Greinargerð | Skoða/Opna | |
skemman_yfirlysing_tilbúin.pdf | 264,29 kB | Lokaður | Yfirlýsing |