Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/45531
Þetta lokaverkefni er til B.Ed.-prófs í leikskólakennarafræðum við Háskóla íslands. Verkefninu er skipt í tvo hluta; greinargerð og handbók. Hugmyndin að verkefninu kom þar sem okkur fannst vanta verkfæri fyrir kennara til að geta aukið hreyfiþroska barna í gegnum daglegt starf á leikskólanum og einnig til virkja foreldra betur í samstarfi. Markmið verkefnisins er að auka skilning á hreyfifærni barna og ýta undir vinnu með grófhreyfifærni þeirra í daglegu starfi í leikskólanum. Við skrifum um fræðilegan bakgrunn varðandi hreyfifærni barna og hvaða leiðir geti þar skilað árangri. Á fyrstu árum barna er byggður grunnur að framtíð þeirra og þess vegna þarf að huga vel að fyrstu árunum og ávallt hafa það að leiðarljósi hvað sé þeim fyrir bestu. Í lok þessarar greinargerðar er handbók samin af okkur sem inniheldur mismunandi leiðir í vinnu með börnum, bæði innan- og utandyra. Handbókin er sér hefti þar sem er að finna margs konar leiki og útfærslur þeirra fyrir kennara, foreldra og/eða aðra aðila sem vinna með börnum.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Griptu.boltann.B.Ed.lokaskil..pdf | 399.01 kB | Opinn | Greinargerð | Skoða/Opna | |
Gríptu boltann!- handbók.skil.pdf | 181.43 MB | Lokaður til...08.05.2050 | Handbók | ||
yfirlysing.pdf | 60.3 kB | Lokaður | Yfirlýsing |