Please use this identifier to cite or link to this item: https://hdl.handle.net/1946/45535
Félagshæfni er vítt hugtak og gegnir veigamiklu hlutverki í lífi barna. Til þess að einstaklingur geti átt í góðum samskiptum við aðra þarf hann að búa yfir slíkri hæfni. Nemendur eru misvel staddir þegar kemur að félagshæfni en rannsóknir hafa sýnt að félagsleg samskipti stuðli að bættri líðan. Þá er nauðsynlegt að efla markvisst félagshæfni allra barna óháð tjáningarmáta. Tilgangur þessa BA-verkefnis er að gera nám viðburðaríkt í gegnum leik og ýta þannig undir félagsleg samskipti ólíkra hópa. Það samanstendur af spilinu Gullkistan og fræðilegri greinargerð í kringum það. Gullkistan er borðspil sem inniheldur spurningar táknaðar með Tákn með tali sem þó er hægt að spila án tákna. Markmið spilsins er þríþætt. Í fyrsta lagi að stuðla að jafnri þátttöku ólíkra nemenda í því starfi sem fer fram innan skólans, í öðru lagi að efla félagsþroska þeirra og í þriðja lagi að stuðla að námi í gegnum leik með því að skapa efni sem ýtir undir þátttöku og hlutdeild ólíkra nemenda í námi og félagslegum samskiptum. Úrvinnslur heimilda gefa til kynna að félagsleg staða fatlaðra barna sé oft slakari en ófatlaðra sem og að lítið sé um námsefni sem sameinar ólíka hópa nemenda. Félagsleg útskúfun fatlaðs fólks getur haft alvarlegar afleiðingar og því mikilvægt að efla félagsleg samskipti meðal þess. Sú staðreynd var höfð að leiðarljósi við hönnun Gullkistunnar.
Filename | Size | Visibility | Description | Format | |
---|---|---|---|---|---|
Gullkistan_ElísaSaraSnædís_ÞRS261L.pdf | 2,38 MB | Open | Complete Text | View/Open | |
Gullkistan_Yfirlysing.pdf | 382,48 kB | Locked | Declaration of Access |