is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/45597

Titill: 
  • Notkun stærðfræðistígs í kennslu stærðfræði í 10. bekk grunnskóla : greinargerð um stærðfræðiverkefni sem hönnuð voru fyrir útikennslu með aðstoð hugbúnaðarins MathCityMap
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Greinargerð þessi fjallar um notkun forritsins MathCityMap í stærðfræðikennslu á elsta stigi grunnskóla. Forritið dregur saman hugmyndir um stærðfræðistíg og notkun snjalltækja í kennslu. Fræðilegt samhengi greinargerðarinnar gerir grein fyrir gagnsemi útikennslu, notkun snjalltækja í kennslu og rannsóknum á notkun forritsins. Leitast er svara við spurningunni hvernig má nýta MathCityMap og annan hugbúnað til útikennslu í stærðfræði á elsta stigi. Tilgangur verkefnisins er að kynna fyrir núverandi og verðandi kennurum nýja möguleika í stærðfræðikennslu. Með greinargerðinni fylgir þá fullbúinn stærðfræðistígur innan forritsins MathCityMap sem prófaður hefur verið með nemendum í 10. bekk. Ítarleg umfjöllun um notkun og notagildi forritsins er sömuleiðis viðfangsefni greinargerðarinnar. Niðurstöður sýna að MathCityMap og annar hugbúnaður geti með góðu móti nýst við kennslu á elsta stigi grunnskóla.

Samþykkt: 
  • 11.8.2023
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/45597


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Skemman_yfirlysing (1).pdf368.21 kBLokaðurYfirlýsingPDF
Notkun stærðfræðistígs í kennslu stærðfræði í 10. bekk grunnskóla.pdf2.32 MBOpinnGreinargerðPDFSkoða/Opna