Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/45671
Kynfræðslu er ábótavant á Íslandi. Hún fær ekki pláss innan aðalnámskrár grunnskóla sem námsgrein heldur er henni dreift yfir nokkrar námsgreinar. Enginn einn aðili er gerður ábyrgur fyrir henni og því er gjarnan auðvelt fyrir kennara að forðast hana. Kynlífsmenning ungmenna hefur tekið hröðum breytingum síðustu ár og eru hugmyndir þeirra um kynlíf allt aðrar en þær voru áður fyrr. Margvíslegir miðlar skipa nú stóran sess í lífi ungmenna og með þeim hafa hugmyndir, viðhorf og væntingar til kynlífs tekið stakkaskiptum. Kynfræðsla er lykilþáttur í því að stýra þessum miklu breytingum í rétta átt. Ungmenni telja kynfræðslu sem veitt er í skólum vera ófullnægjandi, þá sé annars vegar of lítið um hana og hins vegar séu efnistök hennar úrelt. Efnistök kynfræðslu hafa lengi verið gagnrýnd fyrir ofuráherslu á líkamlega þætti og kynlífstengd vandamál. Þá höfði þau heldur illa til ólíkra hópa og skortir gagnrýnið sjónarhorn. Markmið þessarar rannsóknar er að greina íslenskt námsefni sem ætlað er til kynfræðslu og þar með varpa ljósi á stöðu íslensks kynfræðsluefnis. Eigindlegri innihaldsgreiningu var beitt við rannsóknina og var námsefnið skoðað út frá sjónarhóli kynja- og jafnréttisfræða. Niðurstöðurnar voru skoðaðar út frá rannsóknum um hvað æskilegt sé að kynfræðsla fjalli um. Þær sýna fram á þörf á úrbótum og auknu úrvali á námsefni til kynfræðslu.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
tinnalifdavidsdottir.bedritgerd1.pdf | 472,46 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
yfirlysing.lokaverkefni.pdf | 331,7 kB | Lokaður | Yfirlýsing |