Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/45684
Markmið rannsóknarinnar var að kanna hvernig starfsfólk grunnskóla koma til móts við trans nemendur. Leitast var eftir því að skoða hversu sterkt einstaklingsframtak kennara er þegar skapa á öruggt umhverfi í grunnskólum og hvort formlegir verkferlar eru nauðsynlegir svo trans nemendur geti fengið sem bestan stuðning frá starfsfólki og skólastjórnendum. Eigindlegum rannsóknaraðferðum var beitt við gerð rannsóknarinnar. Þrjú einstaklingsviðtöl voru tekin við starfsfólk grunnskóla sem hafa reynslu af því að vinna með trans börnum. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að einstaklingsframtak kennara hefur mikil áhrif á það hvernig grunnskólar koma til móts við trans nemendur. Grunnskólar reiða sig of mikið á þekkingu einstakra kennara og þá sérstaklega hinsegin kennara þegar kemur að málefnum trans barna. Mikilvægt er að fá alla starfsmenn til að leggja sig fram við að styðja trans nemendur. Rannsóknin sýnir einnig að engir formlegir verkferlar virðast vera til staðar í þeim grunnskólum sem tóku þátt í henni. Þrátt fyrir það er starfsfólk að standa sig vel þegar trans nemandi kemur út úr skápnum. Formlegir verkferlar eru þó líklegri til að tryggja það að grunnskólar styðji trans nemendur á viðunandi hátt.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Lokaverkefni.pdf | 540,64 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
Yfirlysing.pdf | 260,88 kB | Lokaður | Yfirlýsing |