Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/45751
Ísland er ríkt af endurnýjanlegum orkuauðlindum. Þrátt fyrir almennan krefjandi þörf á aukinni nýtingu þeirra, m.a. í tengslum við orkuskipti, hefur hægt mjög á henni á undanförnum árum. Hluti ástæðunnar snýr að deilum um ytri áhrif. Hluti snýr að takmörkuðum áhuga sveitarfélaga til að stuðla að orkunýtingu. Sveitarfélög landsins hafa kallað eftir endurskoðun á umgjörð orkumála hér í landi. Með aukinni áherslu á endurnýjanlega orkugjafa í orkuskiptum Íslands kalla sveitarfélögin eftir að stærri hlutdeild af tekjum renni til nærsamfélagsins vegna þeirra áhrifa sem þau verða fyrir vegna orkuframleiðslunnar.
Í þessari ritgerð eru rannsökuð líkön fyrir mat á áhrifasvæði þriggja enurnýjanlegra orkugjafa, auk rafflutningskerfis. Þessir orkukostir eru vatnsafl, vindafl og jarðvarmi. Lagðar eru fram tillögur að líkönum sem uppfylla almenn skilyrði og eru jafnframt einföld í notkun og notendavæn. Líkönin ættu að ná til langstærsta hluta þeirra áhrifa sem af orkuframleiðsunni verður og gæti verið notað til afmörkunar tekjudreifingar til nærsamfélags orkuframleiðslu með endurskoðaðri umgjörð.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Áhrifasvæði endurnýjanlegra orkugjafa - BS Ritgerð Þorsteinn Stefánsson.pdf | 6.73 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
Yfirlýsing um meðferð lokaverkefna.pdf | 122.7 kB | Lokaður | Yfirlýsing |