is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/45800

Titill: 
  • „Ég held að allir séu bara að gera sitt besta alls staðar“: Reynsla einstaklinga sem starfa með flóttafólki og umsækjendum um alþjóðlega vernd á Íslandi
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Rannsóknin snýr að málaflokki flóttafólks og umsækjenda um alþjóðlega vernd á Íslandi. Innsýn í málaflokkinn var fengin með því að skoða sjónarhorn og reynslu einstaklinga sem starfa með flóttafólki og umsækjendum um alþjóðlega vernd. Markmið rannsóknarinnar var að varpa ljósi á reynslu þeirra af starfi og málaflokknum, hvaða áhrif starfsreynslan hefur haft á persónulega sýn þeirra og viðhorf, hvaða hindranir þau mæta í starfi og hindranir sem skjólstæðingar þeirra mæta í íslensku samfélagi. Rannsóknin byggir á aðferðafræði eigindlegrar rannsóknaraðferðar og tekin voru níu viðtöl við einstaklinga sem starfa með flóttafólki og/eða umsækjendum um alþjóðlega vernd. Stuðst var við fræðilega umfjöllun um alþjóðlega fólksflutninga og kenningar sem tengjast þeim, þróun fólksflutninga á Íslandi, félagslegar hliðar þess að flytjast til nýs lands og hindranir að samfélagi. Rannsóknir sem hafa verið gerðar á viðfangsefninu á Íslandi voru settar í samhengi við niðurstöður. Niðurstöður leiddu í ljós að reynsla þátttakenda af starfi er fjölbreytt, það sé bæði krefjandi og gefandi að starfa með flóttafólki og umsækjendum um alþjóðlega vernd. Hindranir í starfi snerust að mestu leyti að úrræðaleysi, vöntun á samtali á milli stofnana og skorti á stefnumótun í málefnum flóttafólks og umsækjenda um alþjóðlega vernd. Bæta þurfi íslenskukennslu, samfélagsfræðslu og styrkja aðra innviði kerfisins í kringum málaflokkinn. Þátttakendur voru bjartsýnir fyrir framþróun málaflokksins og reynsla þeirra getur verið leiðarvísir til úrbóta í málaflokki flóttafólks og umsækjenda um alþjóðlega vernd á Íslandi.

  • Útdráttur er á ensku

    This research focuses on the issues of refugees and asylum seekers in Iceland. Insights to the field were gained by examining the perspectives and experiences of individuals who work with refugees and asylum seekers. The aim of this research was to elucidate their experience of working in this field and the impact it has had on their personal views and sentiments, to expound the obstacles they face while working in this fields, and the obstacles faced by their clients in Icelandic society. The research is based on the methodology of a qualitative research and nine interviews were conducted with individuals who work with refugees and/or asylum seekers. The theoretical framework of the research discusses theories related to international migration, the development of international migration to Iceland and the social aspects and obstacles of settling into a new country. Researches contucted in Iceland regarding these topics are discussed in context with the findings of this research. Findings show that participants experience the field as diverse and that it is both challenging and rewarding to work with refugees and asylum seekers. Participants experience obstacles in the field related to lack of resources, lack of communication between institutions relating to the field, and a lack of strategic planning regarding issues of refugees and asylum seekers. Furthermore, the findings show the need to improve Icelandic courses, education about the Icelandic community and the need to strengthen other infrastructure related to the field. The participants of this research were optimistic about the evolution of the field, and their experience can be a guide for improvements in the field of refugees and asylum seekers in Iceland.

Samþykkt: 
  • 12.9.2023
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/45800


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Yfirlýsing_GMK.pdf195 kBLokaðurYfirlýsingPDF
Meistararitgerð_GyðaMK.pdf696.87 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna