Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/45884
Þróun kennsluaðferða í tungumálakennslu og hvernig þær hafa þróast í gegnum árin er viðfangsefni þessarar ritgerðar. Hér verða færð rök fyrir mikilvægi þess að virkja markmálið í tungumálakennslu og hvernig virkni nemenda í kennslustundum hjálpar þeim að verða færari í að tala markmálið. Þá verða skoðaðar tvær þekktar aðferðir í tungumálakennslu í dag og reynt að varpa ljósi á hvers vegna þessar aðferðir eru taldar bera árangur til þess að virkja nemendur betur í tungumálanámi ásamt því að auka munnlega færni þeirra á markmálinu. Í ritgerðinni verður fjallað um hvernig nota megi kennsluaðferðir úr tónlistar- og leiklistarkennslu til þess að virkja nemendur í tungumálanámi og nefndar nokkrar aðferðir sem notaðar hafa verið. Í lok ritgerðarinnar verða birt drög að kennsluáætlun sem tekur aðallega mið af tveimur kennsluaðferðum sem fjallað hefur verið um.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
IMG-2323.jpg | 2,79 MB | Lokaður | Yfirlýsing | JPG | |
lokaverkefni uppfært, skemman.pdf | 501,03 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |