Please use this identifier to cite or link to this item: https://hdl.handle.net/1946/4595
Í daglegu lífi er mikið reynt að hafa áhrif á kauphegðun neytenda með allskyns auglýsingum svo sem auglýsingabæklingum, auglýsingum í tímaritum, sjónvarpi og útvarpi svo eitthvað sé nefnt. Verslunareigendur reyna að ná til sín viðskiptavinum með alls konar áhugaverðum tilboðum og afsláttum.
Skýrsluhöfundur vildi kynna sér hvort afslættir hefðu áhrif á kauphegðun og þá hvort verðlagning sé í jafnvægi við skynjað virði neytenda. Gögnum var safnað úr bókum, greinum og af veraldarvefnum. Eftir gagnasöfnunina var frumheimildum safnað. Sú rannsóknaraðferð sem varð fyrir valinu var markaðsrannsókn í formi spurningalista. Spurningalistinn var sendur út í tölvupósti.
Markmið rannsóknarinnar sem slíkrar er að þekkja betur kauphegðun neytenda. Niðurstaða skýrslunnar sýnir að afslættir hafa lítil áhrif á kauphegðun neytenda. Neytendur eru almennt á varðbergi gagnvart afsláttarvörum og virðast neytendur ekki leggja sig sérstaklega mikið fram við að finna út hvar þeir geta fengið sem mestan afslátt.
Filename | Size | Visibility | Description | Format | |
---|---|---|---|---|---|
gyda_rut_fixed.pdf | 905.79 kB | Open | Heildartexti | View/Open |