Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/460
Verkefnið skiptist í tvo hluta, annarsvegar fræðilega greinargerð, þar sem fjallað er
um kennslufræði tengda útikennslu, hins vegar er um að ræða náms- og kennsluvef
sem er einkum ætlaður kennurum.
Áhersla er lögð á kennsluaðferðir og ýmsa þætti er lúta að kennslu á umhverfisstíg.
Megin áherslan er lögð á efniskönnun (“project” vinna) og samþættingu námsþátta.
Fjallað er um hvernig umhverfisstígur er skipulagður og uppsettur, og hvernig nýta
má slíkan stíg við í kennslu á miðstigi grunnskóla.
Náms- og kennsluvefurinn er skipulagður í kringum umhverfisstíg við Laxá í
Aðaldal. Verkefnin sem unnin eru hafa öll ákveðin markmið og þeim fylgja ákveðnar
vinnulýsingar. Vefurinn ætti að nýtast sem hvatning fyrir bæði kennara og nemendur
er huga að þátttöku í útikennslu og útinámi við Laxá og almennt í umhverfi skóla.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Greinargerð.pdf | 234.32 kB | Opinn | Greinargerð | Skoða/Opna | |
Vefsíður.pdf | 2.26 MB | Opinn | Vefsíður | Skoða/Opna | |
Vefur.zip | 14.99 MB | Opinn | Vefur | GNU ZIP | Skoða/Opna |