Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/46071
Lokaverkefni þetta felst í því að hanna og teikna tveggja hæða einbýlishús með innbyggðum bílskúr. Hópnum var gert að finna einbýlishús sem væri búið að byggja og aðlaga það að forskrift leiðbeinanda. Neðri hæð er steinsteypt en efri hæð úr timbri ásamt innbyggðum bílskúr. Fyrir valinu varð Kleifarkór 17 sem þótti henta vel til verkefnisins.
Skýrslan inniheldur eftirfarandi atriði: Verklýsingar, verkhluta, tilboðsskrá, kostnaðaráætlun, burðarþolsútreikninga, varmatapsútreikninga, lagnaútreikninga, umsókn byggingarleyfis, gátlista byggingarfulltrúa og verkáætlun.
Teikningasett inniheldur eftirfarandi teikningahluta: Teikningaskrá, aðaluppdrætti, byggingaruppdrætti, burðarþolsuppdrætti, lagnauppdrætti og skráningartöflu.
| Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
|---|---|---|---|---|---|
| Kleifakór-17-Teiknisett.pdf | 13,57 MB | Opinn | Teikningasett | Skoða/Opna | |
| Kleifakór-17-Skýrsla-.pdf | 9,51 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |