Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/463
Markmið rannsóknarinnar var að bera saman tvo danska grunnskóla með tilliti til samstarfs heimilis og skóla þar sem heimilin eru tvítyngd. Þá var lögð áhersla á að athuga hvernig samstarfið fer fram og hverjar áherslur þess eru. Rætt var við þrá kennara í tveimur grunnskólum. Rannsóknin var eigindleg og beitt var opnum viðtölum. Í ljós kom að skólarnir nota báðir foreldrafundi- og samtöl til að byggja upp samstarf við heimilin. Áherslurnar í samstarfinu, það sem foreldrarnir eiga erfiðast með að sætta sig við, tengjast böðun og vettvangsferðum í báðum skólum.
Helsti munurinn á skólunum tveim er að hversu miklu leyti þeir notast við túlka og svo fyrirhöfn þeirra við að fá tvítyngda foreldra til að mæta á foreldrafundi og foreldrasamtöl.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Spurningalisti.pdf | 86.3 kB | Opinn | Spurningalisti | Skoða/Opna | |
Greinargerð.pdf | 295.33 kB | Opinn | Greinargerð | Skoða/Opna |