is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskólinn á Akureyri > Heilbrigðis-, viðskipta- og raunvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/46354

Titill: 
  • „Það ætluðu allir að vinna saman gegn þessum óvini“: reynsla hjúkrunardeildarstjóra af störfum sínum á tímum Covid-19.
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Tilgangur: Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna reynslu hjúkrunarstjórnenda af því að starfa sem deildarstjórar á bráða- og legudeildum innan sjúkrahúsa á Íslandi á tímum heimsfaraldurs af völdum Covid-19.
    Aðferð: Rannsóknin var með eigindlegu sniði og notuð var aðferð Vancouver-skólans í fyrirbærafræði. Tekin voru 15 einstaklingsviðtöl við hjúkrunarstjórnendur, 14 konur og einn karlmann, sem störfuðu á Landspítalanum og Sjúkrahúsinu á Akureyri a.m.k. síðan í ársbyrjun 2020.
    Niðurstöður: Yfirþema rannsóknarinnar er „Það ætluðu allir að vinna saman gegn þessum óvini“. Það er lýsandi fyrir reynslu allra þátttakenda, sem upplifðu í heimsfaraldrinum einstaka samstöðu og stuðning úr öllum áttum, bæði frá samstarfsfólki, yfirmönnum og samfélaginu í heild sinni. Stjórnendurnir fundu fyrir mikilvægi stjórnendahlutverksins og upplifðu tímabilið valdeflandi og lærdómsríkt. Niðurstöðurnar sýna einnig að mikið álag var á störfum hjúkrunarstjórnendanna og minni tími var fyrir stjórnunarstörf vegna mikillar óvissu, tíðra breytinga og óviðunandi aðstöðu. Mikill tími fór í að vera til staðar fyrir starfsfólk öllum tímum sólarhringsins, halda því upplýstu og tryggja öryggi þeirra og sjúklinga. Stjórnendurnir upplifðu mestu áskoranirnar í tengslum við stjórnun mannauðsins og við smitrakningu. Flestir þátttakendur voru þó stoltir af afrekum sínum, en sáu ekki fram á að geta staðið undir álaginu sem starfinu fylgir almennt til lengdar.
    Ályktun: Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að mikið álag var á störfum hjúkrunarstjórnenda í heimsfaraldrinum og sérstaklega í tengslum við mannauðinn. Draga má þá ályktun að sú mikla samstaða sem þátttakendur upplifðu, hafi átt stóran þátt í velgengni íslenskra hjúkrunarstjórnenda í heimsfaraldrinum og ætti að vera fyrirmynd fyrir stjórnendur og heilbrigðiskerfi þegar farsóttir ber að í framtíðinni. Greinilegt er þó að styðja þarf betur við starfsstéttina á tímum krísuástands, veita aukna leiðsögn og undirbúning ásamt auknum stuðningi frá mannauðsteymum við stjórnendur.
    Lykilorð: Hjúkrunarstjórnendur, Covid-19, stuðningur í starfi, samfélagslegur stuðningur, eigindleg rannsókn, fyrirbærafræði.

  • Útdráttur er á ensku

    Aim: To explore the experience of nursing managers working as department heads in emergency and inpatient wards in hospitals in Iceland during the pandemic caused by Covid-19. Method: A qualitative research based on the Vancouver-School of doing Phenomenology where 15 individual interviews were conducted with nursing managers, 14 women and one man, who worked at Landspítali and Sjúkrahúsið á Akureyri at least since the beginning of 2020. Results: The overriding theme of the study is "everyone was going to work together against this enemy" which describes the unique solidarity and support all participants experienced during the pandemic both from colleagues and superiors and society as a whole. The managers experienced the importance of the managerial role and the period as empowering and educational. This said, they experienced immense pressure and less time was spent on administrative tasks due to high uncertainty, frequent changes and unacceptable facilities. Much time was spent on being present for staff at all hours of the day, keeping them informed and ensuring safety of them and patients. The managers experienced the greatest challenges related to human resource management and infection tracking. Although most of the participants were proud of their achievements, they did not expect to be able to withstand the pressure that comes with the job in the long term. Conclusion: The great solidarity managers experienced may have played a big part in the success of Icelandic nursing managers during the pandemic and could be a model for managers when epidemics occur in the future. It is clear, however, that the profession needs to be better supported in times of crisis iv and needs to be provided with increased guidance, preparation and support from human resources teams.

Styrktaraðili: 
  • Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga og Rannsóknarsjóður Háskólans á Akureyri
Athugasemdir: 
  • Ritgerðin er lokuð til 12.02.2025
Samþykkt: 
  • 22.2.2024
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/46354


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Rebekka Héðinsdóttir. Meistaraverkefni.pdf1,08 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna