is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/46369

Titill: 
  • Krossviður og bönd : greinagerð um verkefni í hönnun og smíði sem nýta orkugjafa
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Eftirfarandi verkefni inniheldur greinagerð og verkefnahefti. Verkefnið er lokaverkefni til B.Ed.-prófs í grunnskólakennslu með áherslu á list- og verkgreinar við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Tilgangur verkefnisins er að veita lausnir á tveim helstu vandamálum sem höfundur hefur tekið eftir að kennarar í hönnun og smíði kljást við. Annars vegar er það bekkjarstjórnun í smíðastofunni og hins vegar verkefni sem nýta orkugjafa og eru með virkniþætti.
    Í greinagerðinni er fjallað um frumkvöðla uppeldismiðaðs handverks og hvernig námsgreinin hönnun og smíði hefur mótast af þeim. Farið er yfir hluta af þeim hæfniviðmiðum sem fylgja námsgreininni og hvernig sé hægt að samþætta hana við eðlisvísinda hluta náttúrufræðinnar. Því næst er athugað hvaða áhrif kennari getur haft á nemendur, tengslamyndun og hvernig hægt sé að ná góðri bekkjarstjórnun með jákvæðu andrúmslofti. Í lokin eru nokkur orð um verkefnin sem fylgja þessari greinagerð.
    Von höfundar er að þeir sem kenna hönnun og smíði geti nýtt sér efni greinagerðarinnar til að auðga og þróa sína kennslu og nýtt skemmtilegu verkefnin sem henni fylgja.

Samþykkt: 
  • 26.2.2024
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/46369


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Krossviður og bönd - Greinagerð.pdf459.97 kBLokaður til...19.02.2025GreinargerðPDF
Krossviður og bönd - Verkefnahefti.pdf5.76 MBLokaður til...19.02.2025ViðaukiPDF
Krossviður og bönd - Yfirlýsing.pdf228.92 kBLokaðurYfirlýsingPDF