Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/46481
Ritgerð þessi er til B.A. prófs við lagadeild Háskóla Íslands. Réttarstaða brotaþola hefur verið skeggrædd í þjóðfélagslegri umræðu, þá hefur því verið haldið fram að staða brotaþola hér á landi sé mjög bágborin og fjarlægð brotaþola við mál sitt sé mikil. Í ritgerð þessari verður fjallað um þær breytingar sem urðu á réttarstöðu brotaþola með lögum nr. 61/2022 um breytingu á meðferð sakamála nr. 88/2008 (bætt réttarstaða brotaþola, fatlaðs fólks og aðstandenda). Fjallað verður um þau sjónarmið sem lágu að baki breytingunum og litið til eldri réttarskipan í kjölfarið. Þá verður í stuttu máli einnig litið til þess hvernig réttarstöðu brotaþola er háttað á Norðurlöndunum í kring og jafnframt verður hugleiðingum um hugsanlega aðild brotaþola að máli sínu varpað upp sem og hugmyndum þess efnis hvort frekari breytinga sé þörf.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Marinó Eggertsson - BA-ritgerð.pdf | 446.86 kB | Lokaður til...31.12.2024 | Heildartexti | ||
Skemman - yfirlýsing um meðferð lokaverkefna.pdf | 769.49 kB | Lokaður | Yfirlýsing |