is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Hugvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Hugvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/46596

Titill: 
  • Umhverfiskvíði og sálgæsla: Sálgæslufræði túlkuð í ljósi kenninga Panu Pihkala
Námsstig: 
  • Meistara
Efnisorð: 
Útdráttur: 
  • Í heiminum ríkir ástand sem kallast vistkrísu, sem veldur félagslegum, efnahagslegum og samfélagslegum áskorunum. Fólk upplifir kvíða vegna þess að ástandinu fylgir óvissa og óöryggi. Vísbendingar eru um að umhverfiskvíði sé algengur í samfélaginu og ungmenni séu líklegri en aðrir til þess að upplifa slíkan kvíða. Það má draga þá ályktun að umhverfiskvíði sé vaxandi vandamál. Umhverfiskvíði er sjaldnast sjúklegur en hann getur verið andlegt álag fyrir þau sem upplifa hann. Það bendir til þess að eitthvað þurfi að gera til þess að mæta þeim sem upplifa slíkan kvíða. Hér verður því rannsakað hvort og þá hvernig sálgæsla geti mætt einstaklingum sem upplifa umhverfiskvíða. Samkvæmt Finnska guðfræðingnum Panu Pihkala sem hefur skrifað mikið um umhverfiskvíða má finna bæði tækifæri og áskoranir fyrir sálgæta. Vegna þess hve lítið þessi tvö efni hafa verið rannsökuð samhliða verða hér túlkuð og greind þemu sem birtast bæði í kenningum Pihkala og í sálgæslufræði. Leitast verður eftir því að svara spurningunni hvernig geta kenningar Panu Pihkala um umhverfiskvíða verið framlag til sálgæslufræði?

Samþykkt: 
  • 26.4.2024
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/46596


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Umhverfiskvíði og sálgæsla- Sálgæslufræði túlkuð í ljósi kenninga Panu Pihkala.pdf1,46 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna
Yfirlýsing skemman.png634,24 kBLokaðurYfirlýsingPNG